Árangursrík kynning á íslenskri hönnun og arkitektúr í Japan

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs tók nýlega þátt í sameiginlegum norrænum viðburði í Japan þar sem norræn hönnun og arkitektúr voru kynnt með áherslu á baðmenningu í samstarfi við Íslandsstofu og Sendiráð Íslands í Japan. Viðburðurinn var skipulagður í samstarfi við systurstofnanir Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs á Norðurlöndunum og var hluti af dagskrá Norðurlandanna á heimssýningunni Expo 2025 Osaka.
Mikill áhugi á norrænni nálgun í byggingarlist og hönnun
Í norræna skálanum á heimssýningunni í Osaka fór fram sameiginlegur norrænn viðburður sem gekk vonum framar og fjallaði um hvernig hægt beita hönnun og arkitektúr til að auka vellíðan í borgum og samfélögum.
Þar var fjallað um hvernig góð hönnun og vandaðar lausnir í byggingarlist geta ýtt undir vellíðan, traust, jöfnuð og sameiginlegri velferð á ólíkum sviðum, með baðmenningu, inngildingu, tengslamyndun og samvinnu. Dagurinn var mjög vel sóttur og fullt út að dyrum. Það sýndi glögglega hve mikill áhugi er á viðfangsefninu og norrænni nálgun í byggingarlist og hönnun.
Í Tókýó hélt sendiráð Íslands móttöku í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, arkitektastofuna Basalt Arkitekta og Íslandsstofu. Þar var íslensk hönnun og byggingarlist kynnt fyrir japönskum fagaðilum, fjölmiðlum og samstarfsaðilum, og skapaðist einstakt tækifæri til að efla tengsl milli landanna.
Móttakan var vel sótt og vakti mikla ánægju meðal gesta. Fjöldi nýrra tengsla hefur þegar myndast sem munu nýtast við áframhaldandi verkefni og mögulegt samstarf til framtíðar.








