Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Árstíðirnar fjórar fangaðar í ilm

27. nóvember 2026

Tuttugu ára vinátta, sameiginleg ást á vorilminum og gamall einkabrandari eru kveikjan að nýju samstarfi fatahönnuðanna Helgu Lilju Magnúsdóttur og Guðjóns Tryggvasonar. Undir formerkjum Swiss Premium vinna þau nú að átta ilmum sem sækja innblástur í árstíðirnar fjórar. Fyrstu tveir ilmirnir eru tileinkaðir vorinu.

Helga Lilja og Guðjón kynntust í fatahönnunarnámi við Listaháskóla Íslands fyrir tuttugu árum. Þar myndaðist náinn vinahópur sem gengur undir nafninu Icelanders, en nafnið festist í sessi þegar hópurinn var við starfsnám í París og bjó saman í lítilli íbúð. Vináttan hefur haldist allar götur síðan en eftir um fimmtán ára búsetu Guðjóns í Brussel og heimkomu hans til Íslands skapaðist tækifæri til samstarfs. „Við áttuðum okkur á sameiginlegri ást okkar á þessum ilm, vorilminum sem við elskum öll,“ segir Helga Lilja um tilurð verkefnisins.

Ilmirnir eru hannaðir af þeim Helgu Lilju og Guðjóni í samstarfi við svissneskan ilmgerðarmann, hann Arnaud. Nafnið Swiss Premium á sér jafnframt skemmtilega sögu en milli þeirra tveggja hefur það lengi tíðkast að kalla allt sem þykir einstaklega gott Swiss Premium.

Upphaflega stóð til að hanna einn vor ilm en þegar kom að því að velja á milli tveggja útfærslna voru þau ekki á sama máli. „Við gátum alls ekki valið bara einn ilm því Guðjón aðhylltist annan en ég hinn,“ segir Helga Lilja. Úr varð hugmyndin að átta ilmum, tveimur fyrir hverja árstíð. Vinna við næstu tvo ilma er þegar hafin og þótt vorið marki upphaf ferðalagsins er það veturinn sem tekur næst við.

„Hughrifin á bak við hann komu bara ósjálfrátt, svo veturinn kallaði á að vera næstur í röðinni,“ segir Helga Lilja.

Hönnun umbúðanna er einnig hluti af verkefninu. Yfirbragðið er stílhreint en í stað hefðbundinna umbúða hönnuðu þau klút sem ber upplýsingar um innihaldsefni ilmsins og þjónar jafnframt hlutverki pakkningar. Framundan er því ferðalag í gegnum árstíðirnar þar sem minningar, skynjun og vinátta fá nýja birtingarmynd í ilm.

Tengt efni

  • Baugur Bjólfs hlýtur virt alþjóðleg hönnunarverðlaun Dezeen

  • STÖNG – (Endur)túlkun hlýtur alþjóðleg hönnunarverðlaun í París

  • Höfðinginn snýr aftur í fullri mynd

Dagsetning
27. nóvember 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Viðtal
  • Swiss Premium

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200