STÖNG – (Endur)túlkun hlýtur alþjóðleg hönnunarverðlaun í París

Verkefnið STÖNG – (Endur)túlkun, eftir íslensku arkitektastofuna SP(R)INT STUDIO, hefur hlotið verðlaun sem menningarbygging ársins (Cultural Building of the Year) á DNA Paris Design Awards 2026. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Palais de Tokyo í París.
STÖNG – (Endur)túlkun er arkitektúrverkefni sem tengist sögustaðnum Stöng í Þjórsárdal. Verkefnið byggir á samtali fortíðar og samtíðar þar sem arkitektúr er nýttur til að miðla sögu og menningararfi staðarins.
DNA Paris Design Awards eru alþjóðleg hönnunarverðlaun sem veitt eru fyrir framúrskarandi verkefni á sviði arkitektúrs, innanhússhönnunar, vöruhönnunar, grafískrar hönnunar og stafrænnar hönnunar. Að verkefninu komu meðal annars SP(R)INT STUDIO, Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir, Minjastofnun Íslands, VSB Verkfræðistofa og Langeldur. Verkefnið var einnig tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands árið 2025.
„Það er okkur mikill heiður og ánægja að hljóta þessa alþjóðlegu viðurkenningu. Stangarverkefnið hefur þróast og þroskast mikið frá því að við unnum samkeppnina árið 2012 og hefur verið langt og lærdómsríkt ferli þar sem áhersla hefur verið lögð á samtal fortíðar og samtíðar, varðveislu og endurtúlkun þess sem fyrir er,“ segir Karl Kvaran, arkitekt og stofnandi Sprint-Studio.
„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hvernig þetta sjálfbæra verkefni hefur vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi. Það er bæði hvetjandi og mikilvægt að sjá íslenskan arkitektúr í samtali við alþjóðlegar stefnur og hugmyndir og fá tækifæri til að miðla okkar nálgun og hugmyndafræði á erlendum vettvangi. Við lítum á verðlaunin sem viðurkenningu fyrir alla þá sem hafa komið að verkefninu í gegnum árin.“
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sendir hamingjuóskir!
Ljósmyndir: Claudio Parada Nunes.



