Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Framlengdur skráningarfrestur á HönnunarMars 2027!

23. nóvember 2026

Góðar fréttir! Ákveðið hefur verið að framlengja skráningarfrest á HönnunarMars 2027 til hádegis föstudaginn 11. desember. Öll áhugasöm eru hvött til að nýta tækifærið og taka þátt í stærstu hönnunarhátíð landsins sem fer fram dagana 7.–11. apríl 2027.

Þema HönnunarMars 2027 er INNSÝN og býður þátttakendum að veita gestum innsýn í sköpunarferlið, hugmyndirnar, tilraunirnar og vinnuna sem liggur að baki hönnuninni. Hátíðin er vettvangur fyrir fjölbreyttar sýningar, viðburði og samtal um hönnun og arkitektúr.

Öllum er frjálst að sækja um þátttöku en fagráð HönnunarMars fer yfir allar umsóknir.

Þátttökugjöld

  • 35.000 kr. + vsk. fyrir félaga í fagfélögum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
  • 65.000 kr. + vsk. fyrir þátttakendur utan fagfélaganna.

Stærri samsýningar, nemendasýningar og fyrirtæki eru hvött til að hafa samband við Klöru, dagskrárstjóra HönnunarMars, á klara@honnunarmidstod.is varðandi þátttökugjöld.

Hvað er innifalið í þátttöku?

Þátttakendur fá sýningu sína eða viðburð skráðan í opinbera dagskrá HönnunarMars sem er kynnt á vef hátíðarinnar og fyrir innlendum og erlendum fjölmiðlum. Einnig er innifalið kynningarefni hátíðarinnar, afnot af grafísku forriti HönnunarMars, kynning á samfélagsmiðlum, aðstoð og ráðgjöf.

Þátttaka veitir jafnframt tækifæri til að sækja um DesignMatch, taka þátt í erlendum kynningarverkefnum og njóta forgangs og afsláttarkjara á HönnunarMarkaði.

Við hvetjum hönnuði, arkitekta og öll þau sem vilja vera hluti af HönnunarMars 2027 til að láta til sín taka og senda inn umsókn.

Skráningu lýkur föstudaginn 11. desember kl. 12:00.

Sækja um þátttöku á HönnunarMars 2027

Tengt efni

  • Baugur Bjólfs hlýtur virt alþjóðleg hönnunarverðlaun Dezeen

  • Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttur kemur út í Danmörku

  • Lavaforming eftir s. ap arkitekta sýnt á alþjóðlegri listahátíð í Nice

Dagsetning
23. nóvember 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • HönnunarMars
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200