Átta listakonur sem vinna með leir skoða vasann sem form og hugmynd

Átta íslenskar listakonur kanna mörkin milli notagildis og listrænnar tjáningar á samsýningunni VASI/FASI sem opnar í SÍM Gallery við Hafnarstræti þann 24. október næstkomandi. Þar fær vasinn nýtt hlutverk sem vettvangur fyrir sköpun, tilraunir og leik með efni og form.
Á sýningunni koma saman listakonur sem allar vinna með leir en nálgast miðilinn á ólíkan hátt, á mörkum myndlistar, hönnunar og handverks. Með sýningunni vilja þær varpa ljósi á fjölbreytta möguleika leirsins og þá grósku sem einkennir íslenska samtímaleirlist.
„Okkur langaði að leiða saman ólíkar listakonur sem allar vinna með leir en nálgast miðilinn á mjög mismunandi hátt. Við höfum hver okkar eigin listrænu sýn, aðferðir og áherslur, en eigum það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á möguleikum leirsins sem efniviðar,“ segir Ylona Supèr, ein kvennanna, um tilurð sýningarinnar.
En hvers vegna varð vasinn fyrir valinu?
„Vasinn er áhugavert fyrirbæri vegna þess að hann er svo hversdagslegur og kunnuglegur, en á sér um leið langa sögu í listum og handverki. Okkur langaði að skoða hvað gerist þegar vasinn fær að vera meira en bara ílát fyrir blóm. Hvenær hættir vasi að vera nytjahlutur og verður að skúlptúr? Þarf vasi yfirhöfuð að geta haldið vatni eða blómum til að kallast vasi?“
Með ólíkum aðferðum, glerungum, yfirborðum og skúlptúrískum formum skapa listakonurnar samtal um stöðu keramiks í samtímanum og leika sér að mörkunum milli hefðar og nýsköpunar.
Listakonurnar átta eru:
Antonía Berg
Brák Jónsdóttir
Dagmar Atladóttir
Hanna Dís Whitehead
Hulda Katarína
Nína Óskarsdóttir
Sigurrós G. Björnsdóttir
Ylona Supèr
Opnun fer fram laugardaginn 24. október, kl. 15:00–17:00
SÍM Gallery, Hafnarstræti 16, Reykjavík
Sýningin stendur yfir í SÍM Gallery dagana 24. október til 17. nóvember 2026 en heldur síðan áfram ferð sinni. Vorið 2027 verður hún sett upp í Herðubreið á Seyðisfirði og á Athena Clay Fair / 019 í Gent í Belgíu.





