Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Fatahönnun og veðurdrifinn arkitektúr hljóta hæstu styrki Hönnunarsjóðs

16. október 2026
Styrkhafar úr seinni úthlutun Hönnunarsjóðs 2026

Þróun og markaðssetning nýrra fatalína og verkefnið Veðurdrifinn arkitektúr 2.0 hlutu hæstu styrki í seinni úthlutun ársins úr Hönnunarsjóði. Úthlutunin fór fram í Grósku fimmtudaginn 15. október. Alls var 37 milljónum króna úthlutað til 21 verkefnis á sviði hönnunar og arkitektúrs og veittir voru 17 ferðastyrkir.

Sjóðnum barst 91 umsókn um almenna styrki að heildarupphæð um 250 milljónir króna, auk 34 umsókna um ferðastyrki.

Fatahönnun var áberandi meðal umsókna haustsins. Hæstu styrkina hlutu fatahönnuðirnir Arnar Már Jónsson fyrir verkefnið Ranra Conditions, Sigmundur Páll Freysteinsson fyrir fatamerkið Blær, Sól Hansdóttir fyrir fatalínuna Everything Can Exist og Sóley Jóhannsdóttir fyrir fatalínuna Daydreaming, ásamt arkitektinum Arnhildi Pálmadóttur fyrir verkefnið Veðurdrifinn arkitektúr 2.0.

Fjölmenni var á úthlutuninni sem fór fram í Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í Grósku þar sem Sigrún Brynja Einarsdóttir ráðuneytisstjóri í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og Borghildur Sturludóttir formaður stjórnar ávörpuðu hópinn úthlutuðu styrkjunum.

,,Umsóknir í ár voru eins fjölbreyttar eins og þær voru margar. 92 umsóknir í þróunar-, verkefna og markaðsstyrki og 34 ferðastyrki. Samnefnari þeirra sem hlutu styrk í ár - er bæði frumkvæði, seigla og þor.... en fyrst og síðast fagmennska og trú á að hugverk þeirra hönnuða og arkitekta sem sóttu um, geti breytt ferlum, þróun og endurskoðað söguna svo hægt sé að læra af því góða sem við sem þjóð höfum gert, upplýst okkur og sett í nýtt samhengi.”

Borghildur Sturludóttir, formaður stjórnar.

Stjórn sjóðsins í þessari úthlutun skipuðu Borghildi Sturludóttur formanni stjórnar, Greipur Gíslason, Ingólfur Freyr Guðmunsson, Þorleifur Gunnar Gíslaon og Sæunn Huld Þórardóttir en Sæunn steig inn sem varamenn sökum vanhæfis stjórnarmeðlims.

Hér má lesa nánar um verkefnin sem hlutu styrk úr Hönnunarsjóði: 

Rannsóknar- og þróunarstyrkir

Mógilsá - Ylona Supèr - 500.000 kr

MÓGILSÁ er rannsókn á því hvernig endurhugsa má nær gleymdan staðbundinn efnivið við Esju. Kannað verður hvernig leir, kalkspat og lúpínutrefjar geta myndað ný efni og yfirborð fyrir keramíklampa og skapað nýjar leiðir til að nýta auðlindir staðarins.

Rannsókn á grafískri hönnun úr 50 ára sögu Nýlistasafnsins, frá 1978 til dagsins í dag - Helga Dögg Ólafsdóttir - 800.000 kr

Rannsókn á grafískri hönnun úr sögu Nýlistasafnsins, frá 1978 til dagsins í dag. Verkefnið er liður í undirbúningi 50 ára afmælis safnsins 2028 og hluti af 3 ára rannsókn sem hlaut hlaut Öndvegisstyrk úr Safnasjóði árið 2026. Verkefnið leggur jafnframt grunn að nýrri grafískri mörkun safnsins.

Glerungur úr nágrenninu - Þróun á keramikglerungi - Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir - 1.000.000 kr

Þróun á keramikglerungi úr staðbundnu hráefni úr nærumhverfi með áherslu á að ganga ekki á auðlindir eða skaða umhverfi. Verkefnið skapar jafnframt tækifæri til að miðla þekkingu áfram í gegnum listsköpun.

Hver - Framleiðsluaðferð á íslensku timbri með íslenskum jarðhita - Björn Steinar Blumenstein - 1.000.000 kr

HVER er tilraunaverkefni þar sem íslenskur jarðhiti og íslenskt timbur eru nýtt til húsgagnagerðar. Viður er soðinn í hverum áður en hann er gufubeygður í húsgögn með sérsmíðuðum mótum. Verkefnið rannsakar staðbundna og óhefðbundna framleiðsluaðferð sem leiðir af sér takmarkaða seríu safnhúsgagna.

Vættir Íslands - Eysteinn Þórðarson - 1.000.000 kr

Vættir Íslands er borðspil sem miðlar fróðleik um fjölmargar vættir, drauga, bergbúa og kynjaskepnur sem leynast í íslenskum þjóðsögum. Hönnun spilsins sækir innblástur í íslenskar útskurðarhefðir frá árnýöld. Markmið verkefnisins er að auka áhuga yngri kynslóða á þjóðsögum á nýstárlegan hátt.

Nærvera í arkitektúr - Greining á íslenskum arkitektúr -TERTA - 2.000.000 kr

Þverfagleg langtímarannsókn á yfirborði bygginga sem  ramma um daglegt líf og þarft innlegg inn í oft skautaða umræðu um fagurfræði í arkitektúr. Getur arkitektúr skapað raunveruleg tengsl sem mótvægi við stafrænan heim? Getur tjáning í arkitektúr skapað upplifun af stað og stund?

Verkefnastyrkur

Erindi um arkitektúr - Fræðsluröð - Arkitektafélag Íslands - 350.000 kr

Arkitektafélag Ísland stendur fyrir nýrri fræðsluröð og samtali um arkitektúr. Á fimm viðburðum í Grósku verður fjallað um hvað kjarnar góðan arkitektúr, allt frá fagurfræði yfir í öndun veggja og umhverfisvænan efnivið. Markmiðið er að dýpka faglega umræðu og standa vörð um gæði byggingarlistar.

Spaano: Proprietary Modular Furniture Joint and Hardware System - Egill Spano - 500.000 kr

Spaano er einingahúsgagnakerfi sem byggir alfarið á einni gerð tengistykkis. Tengistykkið tengir rör úr hvaða átt sem er og með því hægt að móta húsgögn og arkitektónískar innsetningar í hvaða stærð sem er. Kerfið er hannað þannig að hægt sé að endurraða því á ótal vegu og gera við það í stað þess að skipta því út.

HÚS - Bókaútgáfa um íbúðarhús - Guðni Valberg - 500.000 kr

Myndlýst bók um íbúðarhús á Íslandi frá landnámi til samtímans. Með fallegum teikningum og aðgengilegum texta er byggingarsaga þjóðarinnar sett fram á listrænan og skemmtilegan hátt. Markhópurinn er börn á aldrinum 10 til 100 ára.

Arkitektúr og … -  Bókaútgáfa - Óskar Örn Arnórsson - 1.250.000 kr

Bókin Arkitektúr og… bregst við skorti á aðgengilegum bókum á íslensku um hugtök, kenningar og samfélagslegt hlutverk arkitektúrs. Í stað hefðbundinnar verk- eða ævisögu tengir bókin arkitektúr við málefni á borð við umhverfi, jafnrétti, heilsu, atvinnulíf og fegurð. Sjálfstæðir, læsilegir kaflar miðla fræðilegri þekkingu til almennings og skapa íslenskan hugtakagrunn sem nýtist nemendum, fagfólki og áhugafólki.

Blóm - Skúlptúrískur ilmgjafi - Þórunn Árnadóttir - 1.500.000 kr

Blóm (Bloom) er skúlptúrískur ilmgjafi sem bókstaflega blómstrar þegar hann er opnaður. Lyftu upp lokinu og pappírsblóm lyftist upp, opnar sig, og dreifir ilmi um rýmið. Ýttu lokinu niður og blómið dregst saman aftur inn í hólfið sitt og lokar þannig á ilminn.

Hringrásarklæðning - Glermulningur til endurnýtingar - Kula Design - 1.500.000 kr

Hringrásarklæðning úr endurnýttum glermulning er sjálfbær vara þar sem úrgangsefni er nýtt beint með lágmarks vinnslu. Áhersla er á endurunnið efni í mismunandi formum sem bætir hljóðvist, bæði inni og úti, og með því að byggja inn lýsingu í klæðninguna verður notagildi vörunnar margþætt.

Þróun vörulínu í prjóni - Gerð prótótýpa - Eygló Margrét Lárusdóttir - 2.000.000 kr

Vöruþróunar á fatnaði í prjóni með háþróaðri prjónavél sem kom til landsins fyrr á árinu. Vélin býður upp á nýja möguleika í vélprjóni en vélin er mun háþróaðri en aðrar vélar hér á landi og getur komið fatahönnun hér á landi á hærri og skemmtilegri stall fyrir minni framleiðendur og meiri sjálfbærni.  

Tvinnflíkur/Everything Can Exist - Ný fatalína - Sól Hansdóttir - 3.500.000 kr

Everything Can Exist er ný fatalína frá Sól Hansdóttur. Línan er byggð er á margra ára hönnunarvinnu sem saman stendur af aðlögunarhæfum „tvinnflíkum“ sem hannaðar eru til að umbreyta og auka notagildi fataskápsins. Línan verður frumsýnd á London Fashion Week.

Blær/vöruþróun - Hönnun og gerð prótótýpa - Sigmundur Páll Freysteinsson - 3.500.000 kr

Blær er nýtt íslenskt fatamerki sem byggir á margra ára rannsóknum á textíl og handverki og fer á markað haustið 2026. Næsti áfangi felst í þróun AW27 fatalínu og gerð prótótýpa í samstarfi við handverksfólk og framleiðendur, uppbyggingu vörumerkisins og heildstæða kynningu á HönnunarMars 2027.

Veðurdrifinn arkitektúr 2.0 - s. ap. arkitektar - 4.000.000 kr

Veðurdrifinn arkitektúr snýst um að hanna byggingar og borgir út frá staðbundnu veðurfari, vindi og snjó. Með vísindalegum greiningum og hermunum sem tengja rannsóknir og hönnun er markmiðið að draga úr orkunotkun, minnka losun og minnka áhrif veðurs á hið manngerða umhverfi og líf fólks.

Markaðs- og kynningarstyrkir

Hörður Ágústsson - Grafísk hönnun - innlend kynning - Studio Studio - 300.000 kr

Grafískt hönnunarverk um Hörð Ágústsson. Hörður Ágústsson hefur lengi verið kallaður endurreisnarmaður íslenskrar myndlistar. Á ferli sínum vann hann auk þess á sviði grafískrar hönnunar. Bókakápur, firmamerki og auglýsingar eru meðal þess sem Hörður vann að á sínum starfsferli. 

Íslenzk Ex libris - innlend kynning - Jónas Björn Pálsson - 450.000 kr
Íslenzk Ex libris er fyrsta bókin um bókmerkjasafn Ólafs F. Hjartar á Landsbókasafni Íslands: 391 bókmerki Íslendinga, öll skönnuð og rannsökuð, með sögum eigenda og höfunda. Bókin var tilnefnd til FÍT-verðlaunanna og kemur út í desember. 

Daydreaming -  erlend markaðssókn - Sóley Jóhannsdóttir - 3.500.000 kr

BY SOLEY sækir á erlenda markaði með SS27 Daydreaming-línunni, sem hlaut verkefnastyrk Hönnunarsjóðs árið 2025. Markaðssóknin felur í sér PR-herferð og kynningarviðburð í samstarfi við Green Banana PR og þátttöku í Awaykin Showroom í París, þar sem línan verður kynnt fyrir alþjóðlegum kaupendum.

RANRA CONDITIONS - erlend markaðssókn -  Arnar Már Jónsson - 3.500.000 kr
RANRA CONDITIONS er næsta skref í alþjóðlegri uppbyggingu merkisins. Verkefnið byggir á þeirri hugmynd að heimur RANRA ferðist á milli staða en taki á sig nýja mynd eftir aðstæðum hverju sinni. Verkefnið tengir saman pop-up, innsetningar, JÖRÐ publishing og markvissa alþjóðlega kynningu með áherslu á París og Ísland.

Ferðastyrkir að upphæð 150.000 kr hver:

  • Hanna Dís Whitehead, rannsóknarverkefni og námskeið, Sviss
  • Selma Ragnarsdóttir, ráðstefnuferð til Riga, Lettland
  • Sigríður Soffía Níelsdóttir, kynningar- og markaðsferð til London, Bretland
  • Henny Hafsteinsdóttir, vinnuferð f. verkefnið Teiknað af konum (hlaut tvo styrki), Þýskaland
  • Basalt Arkitektar, þátttaka í viðburði fyrir verkefnið SOAK í New York (hlaut tvo styrki), Bandaríkin, 
  • Ivan Jugovic, þekkingaröflun og þróun á brimbrettaframleiðslu, Portúgal
  • Arnar Freyr Guðmundsson, ráðstefnuferð til Hamborg, Þýskaland
  • Drin Bujupi, framleiðsluferð, Ítalía
  • Aðalheiður Borgþórsdóttir, vinnustofa í sútun á skinni í Vågå, Noregur
  • Anna Diljá Sigurðardóttir, þátttaka í viðburði í Osló (hlaut tvo styrki), Noregur
  • Baldur Haraldsson, kynningar-og markaðsferð, Eindhoven (hlaut tvo styrki), Holland
  • Rán Flygenring, þátttaka í teiknismiðju og opnun sýningar, Vilníus, Litháen
  • Sólrún Ósk Jónsdóttir, rannsóknarferð, Svíþjóð

Tengt efni

  • Hönnuður í fókus: Jón Helgi Hólmgeirsson

  • Sköpunargleðin tekur völdin á öðrum fyrirlestri vetrarins

  • Skýrsla HönnunarMars 2026 er komin út

Dagsetning
16. október 2026
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Fagfélög
  • Hönnunarsjóður

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200