Hönnuður í fókus: Jón Helgi Hólmgeirsson

Jón Helgi Hólmgeirsson er vöru- og samspilshönnuður sem hefur komið víða við á sínum ferli. Hann hefur meðal annars hannað fyrir IKEA, Norður Salt, FÓLK Reykjavík og Genki Instruments, þar sem hann starfaði sem yfirhönnuður í átta ár. Í dag er hann fagstjóri meistaranáms í hönnun við Listaháskóla Íslands, situr í listrænu teymi DesignTalks 2027 og hefur nýverið opnað sýningu þar sem blóm vakna til lífsins í samspili ljóss og skugga. Hann er líka tónlistarmaður í hjarta sínu, áhugasamur trésmiður og óþreytandi námsmaður sem dreymir um að flytja út á land, rækta grænmeti og koma sér upp litlu verkstæði. Jón Helgi er hönnuður í fókus í októbermánuði.
Jón Helgi er 38 ára, uppalinn í Hvassaleitinu í Reykjavík en býr nú í Vesturbænum. Þótt hann hafi alist upp í höfuðborginni hefur sveitin alltaf togað í hann. „Foreldrar mínir eru utan af landi og öll skyldmenni mín bjuggu utan Reykjavíkur þegar ég var barn. Það besta sem ég vissi var að fara í heimsóknir til skyldmenna úti á landi og ég bölvaði foreldrum mínum fyrir að hafa flutt til Reykjavíkur áður en ég fæddist. Það blundar enn í mér draumur um að flytja út á land og vera þar með matjurtagarð og gróðurhús og lítið trésmíðaverkstæði,“ segir hann.
Forvitnin og löngunin til að læra eitthvað nýtt virðast vera rauður þráður í lífi Jóns Helga. Á síðustu fjórum árum hefur hann meðal annars sótt námskeið í keramiki, tennis, sundi, söng og trommuleik. Hann hefur líka ferðast til Japans til að læra japanska trésmíði og til Bandaríkjanna til að læra að gufubeygja við. Um þessar mundir situr hann kennslufræðinámskeið við Listaháskóla Íslands.
„Ég er skúffuskáld og á heilan haug af lögum“
Tónlistin hefur fylgt Jóni Helga frá barnæsku. Hann söng í barnakór og byrjaði að læra á gítar um tíu ára aldur. Það var þó ekki endilega tæknin við hljóðfærið sem heillaði hann mest, heldur möguleikinn á að skapa eitthvað nýtt.
„Ég hef alltaf haft áhuga á alls konar og verið jack of all trades, master of none. Ég fann mig aldrei í íþróttum en var í barnakór og byrjaði að læra á gítar þegar ég var í kringum tíu ára. Ég tengdi ekkert við að læra sóló eftir aðra heldur fannst mér skemmtilegast að semja lög og geri það enn í dag. Ég fæ oft þörf fyrir að skapa og ég gríp eiginlega oftar í gítarinn og sem lag heldur en ég teygi mig í skissubók og teikna niður einhverja hugmynd,“ segir Jón Helgi.
Hann segist lengi hafa dreymt um að verða tónlistarmaður en aldrei farið þá leið af fullum þunga. Hann spilaði þó með hljómsveitunum Sing for Me Sandra og Ultra Mega Technobandinu Stefán, sem var þekkt fyrir kraftmikla sviðsframkomu. „Það var góð reynsla fyrir introvert eins og mig að spila með því bandi. Mig langaði alltaf að verða tónlistarmaður en lærði aldrei grunninn og hef einhvern veginn alltaf bara nálgast það sem áhugamál. Það hentar mér ágætlega því ég er með þokkalegan skerf af framkomukvíða. Svo hefur það einhvern veginn atvikast þannig að allir bestu vinir mínir eru tónlistarmenn,“ segir Jón Helgi.

„Ég er skúffuskáld og á heilan haug af lögum og er að vinna í að gefa út fyrsta singulinn. Ég segi það bara hér til að setja pressu á mig að klára þetta. Mig vantar deadline fyrir þetta verkefni.“
Vaxlitaskipið sem breytti öllu
Það var raunar nokkur tilviljun að Jón Helgi lagði hönnun fyrir sig. Eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð tók hann sér ársfrí og velti fyrir sér framtíðinni. Íslenska, arkitektúr og fornleifafræði voru meðal þeirra greina sem komu til greina. Að lokum ákvað hann að sækja um í Listaháskóla Íslands, en ekki fór allt samkvæmt áætlun.
„Ég held ég hafi ekki vitað að ég hefði áhuga á hönnun fyrr en ég var kominn inn í vöruhönnunarnámið í LHÍ. Ég ætlaði upphaflega að sækja um í arkitektúr en einhver sagði mér að ég kæmist aldrei inn ef ég hefði ekki farið í gegnum fornám og lært tækniteikningu. Þannig að ég sótti frekar um í vöruhönnun. Ekki að það eigi að vera neitt auðveldara að komast inn í vöruhönnun,“ segir Jón Helgi og hlær.
Umsóknarmappan var að hans sögn heldur óhefðbundin. Þar mátti finna gamlar portrettteikningar, myndir af máluðum peysum og gítar sem hann hafði tekið í sundur og breytt. Til að sýna fram á þrívíða hugsun smíðaði hann svo skip úr vaxlitum. „Sá sem tók mig í viðtal nefndi að þetta skip væri ástæðan fyrir því að ég hefði fengið viðtal! Ég man svo vel eftir þessu viðtali því ég var staddur á Interrail-ferðalagi í Frakklandi og tók viðtalið í gegnum Skype á netkaffihúsi í mjög lélegu netsambandi. Þau sem tóku við mig viðtalið sáu mig en ég sá þau ekki, þannig að ég er ekki alveg viss hver það var sem tók þetta viðtal við mig. Ég fékk síðan neitun. Eðlilega.“
Jón Helgi lét höfnunina ekki slá sig út af laginu og skráði sig í ritlist við Háskóla Íslands. Nokkrum vikum síðar barst honum hins vegar óvænt símtal frá Listaháskólanum þar sem honum var boðið pláss af biðlista. „Ég man að ég varð smá móðgaður, enda búinn að gera önnur plön, en ákvað síðan að þiggja plássið og er bara mjög sáttur við þá ákvörðun. Það væri áhugavert að vita hvar ég væri ef ég hefði lært ritlist en ekki hönnun.“
Sænskur prófessor á eftirlaunum ólmur í uppfinningu Jóns Helga
Námið í vöruhönnun reyndist eiga einstaklega vel við hann. Síðar lá leiðin í meistaranám í samspilshönnun við Háskólann í Malmö þar sem Jón Helgi uppgötvaði mikilvægi notendamiðaðrar hönnunar og þverfaglegs samstarfs.

„Ég fór í námið fyrir tæknina og gagnvirknina, en það sem ég tók út úr náminu var notendaparturinn, samspilið. Ég lærði hvað það getur fleytt manni langt að vinna í þverfaglegu teymi. Maður lærði hvað það er mikilvægt að kunna að vinna í hóp og hvað það getur verið fáránlega erfitt þegar hópurinn er vitlaust samsettur eða ef egóin fara að trufla. Að sama skapi lærði ég líka hvað það getur verið létt og hvað maður kemst miklu lengra þegar maður á í góðu samstarfi og samtali,“ segir hann.
Meistaraverkefnið hans sameinaði einmitt tvö helstu áhugasvið hans, hönnun og tónlist. Hann þróaði tæki sem áhorfendur gátu borið yfir axlirnar og skynjað tónlist í gegnum púlsandi snertingu við líkamann. Á meistaravörninni varð svo heldur óvenjuleg uppákoma þegar prófdómarinn, sænskur prófessor sem nýlega var kominn á eftirlaun, vildi ólmur prófa uppfinninguna.
„Ég strengdi þetta litla tæki yfir axlirnar á honum og spilaði tónlist bæði úr hátalarakerfinu og beint á líkamann á honum. Og hann dansaði í takt! Ég breytti sem sagt meistaravörninni minni í lítið einkapartí, sem var samt með áhorfendum. Mjög skemmtilegt en líka frekar absúrd.“
Frá saltumbúðum til tónlistartækni
Á ferlinum hefur Jón Helgi fengist við fjölbreytt verkefni og hannað fyrir fyrirtæki á borð við IKEA, FÓLK Reykjavík, Íslandsstofu og Norður Salt. Það síðastnefnda var fyrsta launaða verkefnið hans eftir útskrift og skilaði honum og samstarfsfólki hans hjá Jónsson & Le'macks alþjóðlegu Red Dot hönnunarverðlaununum
„Þetta verkefni kenndi mér kraftinn í samstarfi en ég var bara einn lítill óreyndur dúddi að vinna með fagfólkinu hjá Jónsson & Le'macks. Ég hannaði hvernig væri hægt að búa til umbúðir sem opnuðust út á móti þér, svona lítil skúffa fyrir aukið aðgengi að saltinu, án þess að nota lím! Þetta var unnið í virku samtali við Albert og fleiri hjá JL og það er ástæðan fyrir að þetta verkefni gekk svo vel. Þessi partur af hönnuninni er ekki einu sinni lengur hluti af umbúðunum,“ segir Jón Helgi.




Genki ævintýrið hefst
Eitt stærsta verkefni ferilsins hófst þó árið 2015 þegar nýstofnað tónlistartæknifyrirtæki, Genki Instruments, hafði samband við hann. Þar fékk Jón Helgi tækifæri til að sameina ástríðu sína fyrir tónlist og hönnun með nýjum hætti. „Ég var nýbúinn í meistaranáminu þegar Óli Bjarki hjá Genki heyrði í mér og spurði hvort ég vildi vera hönnunarráðgjafi hjá nýstofnuðu, kannski tveggja vikna gömlu, nýsköpunarfyrirtæki. Ég þurfti ekki að hugsa mig neitt um, enda hef ég alltaf haft gríðarlegan áhuga á tónlist og reynt eftir fremsta megni að blanda saman hönnun og tónlist þegar ég get. Samstarfið gekk strax vel okkar á milli og á endanum var ég búinn að vera þar yfirhönnuður í átta ár,“ segir Jón Helgi.
Hjá Genki þróaði hann ásamt samstarfsfólki sínu meðal annars Wave, hring sem gerir tónlistarfólki kleift að stjórna og móta hljóð með handahreyfingum. Fyrirtækið hlaut Hönnunarverðlaun Íslands árið 2019 þegar hringurinn kom á markað. Wave vakti athygli langt út fyrir landsteinana og var meðal annars nýttur af tónlistarfólki sem starfaði með Coldplay, Dua Lipa og Hans Zimmer
„Frá byrjun var Genki samtal milli verkfræði og hönnunar. Við byrjuðum strax að virkja notendur og náðum að koma vöru á markað alþjóðlega á fjórum árum þrátt fyrir að vera lengst af bara fjórir starfsmenn. Wave opnaði á nýja möguleika í tónlistarsköpun og það var kannski ákveðinn galli hvað var hægt að gera margt með honum. Það þurfti að læra inn á hann, fatta möguleikana og tileinka sér þá, svo þetta var ekki tæki fyrir alla. En fyrir þá sem náðu að tileinka sér hann opnaði þetta á nýjar víddir.“ Þótt þrjú ár séu liðin frá því að Jón Helgi kvaddi Genki fylgist hann enn með fyrirtækinu og því hvernig tæknin nýtist tónlistarfólki. Nýlega fór hann á tónleika Halldórs Eldjárns í Tjarnarbíó þar sem Wave-hringurinn kom við sögu og var notaður til að stýra sýningunni.
Að hanna nám og opna dyr fyrir aðra
Í dag gegnir Jón Helgi starfi fagstjóra meistaranámsins Design & New Environments við Listaháskóla Íslands. Það hlutverk kom nokkuð óvænt upp í hendurnar á honum. Eftir fimm ár sem stundakennari í vöruhönnun sótti hann um stöðu háskólakennara og sá fyrir sér hlutastarf samhliða sjálfstæðum hönnunarverkefnum. Annað kom á daginn.
„Ég fékk símtal þar sem mér var boðið að taka við fagstjórn í meistaranáminu. Ég hugsaði mig um í tvær mínútur og sagði síðan já. Ég er mjög hrifinn af spontant ákvörðunum. Þarna vissi ég samt ekkert hvað ég var að fara út í og vissi ekkert um þessa nýstofnuðu námsbraut. Ég lærði það meira og minna þegar ég mætti tveimur vikum áður en tólf nemendur frá öllum heimshornum mættu á svæðið og áttaði mig á því að það væri ekki einu sinni til stundatafla fyrir önnina. Þetta var dálítið brött brekka en hallinn fer dvínandi.“



Síðustu tvö ár hefur hann unnið að því að þróa námið og móta það í samstarfi við nemendur og atvinnulíf. Hann nálgast verkefnið á svipaðan hátt og hönnunina sjálfa, með tilraunum, endurskoðun og stöðugri þróun. „Í raun nálgast ég þetta nám eins og hverja aðra hönnun. Ég prófa eitthvað, læri af því, breyti og prófa aftur. Og reyni að gera það í virku samtali við nemendur. Ég er að læra að verða stjórnandi og er að hanna nám. Ég sá það kannski ekkert endilega fyrir mér að þetta væri eitthvað sem ég myndi taka mér fyrir hendur, en þetta er búið að vera áhugavert,“ segir Jón Helgi.
Eitt af því sem hann leggur sérstaka áherslu á er að skapa raunveruleg tækifæri fyrir nemendur. Í náminu er unnið náið með fyrirtækjum og stofnunum og verkefnin geta orðið að samstarfi sem heldur áfram eftir útskrift. Að sögn Jóns Helga höfðu um 60% þeirra 21 nemanda sem farið höfðu í gegnum námið frá því hann tók við fengið greitt tækifæri til að halda áfram með verkefni sem hófust innan skólans.
„Markmiðið er að kenna nemendum hönnun, skapa þeim raunveruleg tækifæri en líka kynna út á við hvað hönnun getur gert þegar hún er partur af samtalinu frá byrjun. Það er áhugavert að vinna með meistaranemendum því þetta eru nemendur með alls konar bakgrunn og frá alls konar löndum. Þau vita oft miklu meira en ég og í staðinn fyrir að ég þykist vita allt, eða líða eins og ég þurfi að vita allt, hef ég reynt að staðsetja mig þannig að ég sé einhver sem býr til tengingar, beinir nemendum í rétta átt og opnar dyr og gerir hluti mögulega.“
Nýjar raddir á DesignTalks 2027
Jón Helgi er jafnframt einn fimm einstaklinga í nýskipuðu listrænu teymi DesignTalks 2027, opnunarviðburðar HönnunarMars. Teymið kemur úr ólíkum greinum hönnunar og vinnur saman að því að móta innihald og áherslur viðburðarins. Hann segir það sérstaklega spennandi að fá ólík sjónarhorn að borðinu og telur þverfaglegt samtal mikilvægt þegar móta á dagskrá sem höfðar til breiðs hóps.

„Ég er mjög spenntur fyrir þessari nýjung og finnst afskaplega góð nálgun að hafa þetta þverfaglega samtal. Ég get alveg haft skoðun á því hvort mér, sem vöruhönnuði, þyki tilteknir grafískir hönnuðir eða arkitektar spennandi eða ekki, en ég er ekki alveg með puttann á púlsinum hvað er ferskt og hvað ekki. Ég kem inn í þetta fyrir hönd vöruhönnuða, þannig að ég hef verið að spyrja kollega mína hvað þeim þyki spennandi, svo við veljum vonandi eitthvað sem höfðar til margra! Samstarfið hefur allavega gengið áfallalaust fyrir sig hingað til og ég er spenntur fyrir þeim mögulegu nýjungum og breytingum sem við komum með til að tefla fram.“
Þegar sólin vekur blómin til lífsins
Þrátt fyrir annasamt starf við kennslu og fagstjórn hefur Jón Helgi haldið áfram að skapa á eigin forsendum. Undanfarin ár hefur áhugi hans á handverki og efnistilraunum aukist og hann eyðir gjarnan frístundum sínum á trésmíðaverkstæði sem hann deilir með vinum sínum.
„Mér finnst hönnun mjög skemmtilegt fag og ég hef þróast undanfarin ár frá því að vera með fókus á fjöldaframleiðslu yfir í að elska handverkið sjálft. Ég byrjaði í raun ekki að smíða fyrr en fyrir svona sex árum þegar ég byrjaði að leigja bílskúr með nokkrum félögum og sanka að mér trésmíðagræjum. Ég kunni raunverulega ekki á neinar trésmíðavélar fyrir það. Þannig að ég hef að miklu leyti lært þetta í gegnum trial and error. Gert fullt af mistökum en í dag er þetta eitt af stærstu áhugamálunum mínum og það er ótrúlegt hvað það getur gefið mér mikla orku að fara upp í skúr að smíða eitthvað.“
Nýjasta sýning Jóns Helga, Og svo kemur sólin og blómin vakna af dvala, opnaði í Herma við Hverfisgötu 9. október síðastliðinn og stendur yfir til 18. október. Þar sýnir hann tuttugu ný verk þar sem ljós og skuggar leika lykilhlutverk og myndir af blómum birtast og hverfa eftir því hvernig sólarljósið fellur á verkin. Hugmyndin kviknaði á óvæntan hátt þegar hann sat heima í stofu og tók eftir litlum svörtum depli á innrömmuðu listaverki.
„Það var sól úti og inni í einum rammanum var svartur depill sem átti ekki heima þar. Þegar ég skoðaði þetta betur sá ég að það var kusk á glerinu sem varpaði þessum skugga á verkið í rammanum. Þá datt mér í hug að ég gæti mögulega gert eitthvað á eða í gler sem myndi búa til svona skuggaverk. Sama sumar voru vinir mínir að fara að gifta sig og mér datt í hug að búa til listaverk til að gefa þeim. Það var í raun deadline-ið sem ég þurfti til að byrja að gera tilraunir með þessa hugmynd.“
Brúðkaupsgjöfin varð reyndar ekki tilbúin í tæka tíð, en Jón Helgi hafði ýmislegt annað á sinni könnu í veislunni. „Mér til varnar þá var ég veislustjóri í þessu brúðkaupi, spilaði í athöfninni, söng á ballinu og hafði smíðað brúðkaupshlið sem brúðhjónin giftu sig undir. En þetta kom mér allavega af stað,“ segir hann.
Hugmyndin þróaðist áfram og varð að sýningunni Og svo kemur sólin í Ásmundarsal árið 2022. Þar voru verkin háð birtunni og þar sem sýningin fór fram í nóvember gripu gestir til vasaljósa í símunum sínum til að sjá myndirnar. Úr varð óvænt gagnvirk upplifun. Nú hefur Jón Helgi þróað hugmyndina enn frekar og beinir sjónum sínum að blómum sem hann tíndi síðasta sumar, teiknaði og pressaði til varðveislu.
„Það sem einkennir verkin er samspil ljóss og skugga. Rétt eins og blómin vaxa og teygja sig til sólarinnar þá lifna verkin við þegar sólin skín á þau. Eina stundina er teikning uppi á vegg og þá næstu hangir þar tómur rammi, þar til blómið vaknar aftur af dvala. Svo er það hönnuðurinn í mér sem vill hafa skýrleika og þess vegna segir titillinn í raun allt sem segja þarf, þó hann sé þónokkuð langur.“
Sköpunargleði, samstarf og eitt gott deadline
Jón Helgi segist fá flestar hugmyndir þegar hann hefur svigrúm til að láta hugann reika. Að láta sér leiðast geti jafnvel verið góður jarðvegur fyrir sköpun, en það sé annað mál að koma hugmyndunum í framkvæmd.
„Það sem kveikir flestar hugmyndir er þegar ég fæ andrými. Þegar það skapast rými í hausnum á mér þá fyllist það yfirleitt fljótt af nýrri hugmynd. Ég finn sérstaklega fyrir þessu ef mér byrjar að leiðast, þá er ég mest skapandi. En það er eitt að fá hugmynd og annað að framkvæma hana og ég er búinn að læra að það eina sem hjálpar mér að klára hugmynd er ef ég fæ skýrt deadline. Ég get unnið mjög hratt og skilvirkt ef ég þarf að skila einhverju af mér á morgun. Þess vegna tek ég yfirleitt þátt í HönnunarMars, því það býr til deadline fyrir mig til að klára hugmyndir,“ segir Jón Helgi.
Fleiri verkefni eru þegar í farvatninu. Jón Helgi hefur meðal annars verið að þróa hátalara í samstarfi við tónlistarmanninn Halldór Eldjárn og hyggst jafnframt hefja framleiðslu á eigin hönnun undir merkinu Studio Helgi. Þar er um að ræða hluti sem hann hefur hannað fyrir heimilið og prófað í daglegri notkun undanfarin ár. Hann hefur einnig mikinn áhuga á að nýta þá þekkingu sem hann aflaði sér í sumar þegar hann lærði gufubeygingu viðar við Haystack Mountain School of Crafts í Bandaríkjunum undir handleiðslu japönsku listakonunnar Yuri Kobayashi.
„Ég fékk styrk frá Fulbright Iceland til að vera þar í tvær vikur og bjó nánast inni á verkstæði. Ég tók með mér allar græjur til að gufubeygja við hingað heim og ég get ekki beðið eftir að byrja að gera tilraunir og vinna með þessa tækni í verkum mínum. Vantar bara eitt gott deadline,“ segir hann kíminn.
Það er því ljóst að hugmyndirnar skortir ekki hjá Jóni Helga, hvort sem þær snúast um tónlist, húsgögn, kennslu eða listaverk sem vakna til lífsins í sólarljósinu. Og einmitt það síðastnefnda virðist enn veita honum jafn mikla gleði og þegar fyrsta hugmyndin kviknaði við stofuborðið fyrir nokkrum árum.
„Nú er ég búinn að vera með fyrstu prótótýpuna af þessum verkum uppi á vegg heima hjá mér í fjögur ár og það kemur mér enn á óvart hvað það fylgir því mikil gleði þegar teikningin birtist í rammanum sem annars er tómur. Það bendir manni líka á að sólin er mætt og maður ætti í raun að drífa sig út,“ segir Jón Helgi að lokum og brosir.


