Skýrsla HönnunarMars 2026 er komin út

Skýrsla HönnunarMars 2026 er nú komin út og hægt er að lesa hana hér. Í skýrslunni má finna allt um undirbúning hátíðarinnar og framkvæmd, yfirsýn yfir sýningar, viðburði, fjölmiðlaumfjallanir, myndir af fólki á ferð og flugi og margt fleira skemmtilegt.
„Þegar litið er yfir HönnunarMars 2026 standa ekki aðeins eftir fjölmargar sýningar og viðburðir heldur öll þau tengsl sem urðu til. Samtölin sem hófust. Samstarfið sem kviknaði. Hugmyndirnar sem halda áfram að þróast löngu eftir að hátíðinni lýkur. Þar liggur raunverulegt gildi HönnunarMars. Mig langar því að færa öllum sem komu að HönnunarMars innilegar þakkir. Hönnuðum og arkitektum sem treystu hátíðinni fyrir verkum sínum, sýningarstjórum sem mótuðu öflugar sýningar, fyrirtækjum og samstarfsaðilum sem tóku virkan þátt og styrktaraðilum sem gera okkur kleift að halda áfram að byggja hátíðina upp ár frá ári. Það hefur verið mér mikill heiður að fá að leiða þessa hátíð. Hún hefur sýnt okkur að skapandi greinar dafna best þegar fólk kemur saman af metnaði, örlæti og trú á sameiginlega framtíð.“
Úr ávarpi Helgu Ólafsdóttur, fyrrum stjórnanda HönnunarMars.
HönnunarMars fer fram 7.-11. apríl 2027 og lesa má nánar um það hér.

„Þátttaka í HönnunarMars er ótrúlega dýrmæt reynsla fyrir mig. Að frumsýna nýja vörulínu, finna fyrir áhuganum á henni, hitta nýtt fólk og eiga samtöl um verkin gefur mér bæði aukið sjálfstraust og orku til að halda áfram. Hátíðin skapar einstakan vettvang þar sem íslensk hönnun fær að njóta sín og bæði innlend og erlend tengsl myndast sem lifa áfram löngu eftir að hátíðinni lýkur. #elskaHönnunarMars,“ segir Theodóra Alfreðs, vöruhönnuður.
HönnunarMars 2026
„HönnunarMars er mjög mikilvægur vettvangur fyrir skapandi greinar sem lífgar upp á borgina, styrkir alþjóðlega ímynd Reykjavíkur og hefur jákvæð menningarleg og efnahagsleg áhrif, auk þess að stuðla að samtali um framtíð borgarinnar,“ segir Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, skrifstofustjóri menningarborgar á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar.


