Virkilega vel heppnuð hátíð AGI Open: Nafli alheims um sinn

Nú er nýafstaðin veisla á sviði grafískrar hönnunar og miðlunar þegar AGI Open var haldin í Reykjavík þann 1. og 2. október s.l. Þar stigu á stokk á fimmta tug erlendra hönnuða, listrænna stjórnenda og listamanna í fremstu röð og fullt var út úr dyrum bæði á fyrirlestra deginum í Gamla bíó og blandaðri dagskrá í Grósku.
„Við erum bara öll alveg í skýjunum með þetta,“ segja þau Hjalti Karlsson og Hlín Helga Guðlaugsdóttir sem fóru fyrir skipulagsteymi AGI á Íslandi. „Það var gaman að sjá að erlendu gestirnir nutu þess að vera hér og kynnast íslensku senunni og öfugt. Innblástur á báða bóga, sem var stóra markmiðið.“













Um það bil 50 meðlimir AGI tóku beinan þátt í dagskránni, þar á meðal Robert Wong, aðstoðarforstjóri Google Creative Lab, Paula Scher hjá Pentagram, Veronica Fuerte, sem er í stjórn Art Directors Club (ADC) og situr í ráðgjafaráði Canva, Julia Hasting, listrænn stjórnandi hjá alþjóðalega bókaforlaginu Phaidon Press og hinn heimsþekkti teiknari Christoph Niemann. Kynnar voru þeir Hjalti Karlsson og Jan Wilker, hjá Karlssonwilker.
Einum íslenskum þátttakanda varð að orði: „Okkur finnst oft að við séum nafni alheimsins, hér á Íslandi, og nú gerðist það allt í einu. Þetta var eins og einhver draumur, að rölta upp Bankastrætið og mæta gömlum skólafélögum og alþjóðlegum hetjum fagsins á sama tíma. Óraunverulegt og æðislegt í senn.“
Látum myndirnar tala sínum máli.
Ljósmyndir: Sunna Ben og Lilja Jóns.














