Sköpunargleðin tekur völdin á öðrum fyrirlestri vetrarins

Á tímum þegar vindar blása úr öllum áttum beinum við sjónum að sköpunargleðinni, forvitninni og kraftinum sem býr í hönnun og arkitektúr. Við opnum samtalið og skoðum sköpunina og hvernig hönnuðir og arkitektar rannsaka, rýna og leita lausna við stórum og smáum áskorunum. Hugum að grunninum, uppsprettunni, gleðinni og fegurðinni sem knýr okkur áfram og veitir innblástur og blæs okkur bjartsýni í brjóst.
Næsti fyrirlestur Tölum um hönnun og arkitektúr fer fram í stóra sal Grósku næsta miðvikudag, 21. október, kl. 9:00-10:00. Húsið opnar að vanda kl. 8:30 með rjúkandi heitum bolla og bakkelsi.
Sex framúrskarandi hönnuðir og arkitektar stíga á svið og veita okkur innsýn í verkefni sem þau eru að fást við, hvaðan hugmyndir spretta og hvað drífur þau áfram.
Birta Fróðadóttir, arkitekt
Lóa Hjálmtýsdóttir, myndlýsir
Logi Pedro, vöruhönnuður
Júlíana Ósk Hafberg, fatahönnuður og Elsa Jónsdóttir, grafískur hönnuður
Sóley Jóhannsdóttir, fatahönnuður
Þorgeir Blöndal, grafískur hönnuður
Búi Bjarmar Aðalsteinsson, hönnuður og stofnandi Grallaragerðarinnar er kynnir.
Hlökkum til að byrja daginn með ykkur í góðum félagsskap með áhugaverðu samtali.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í samstarfi Vísindagarða Háskóla Íslands, Grósku og Bláa Lónið standa fyrir mánaðarlegum viðburðum / samtali um hönnun og arkitektúr.


