Auður hugmynda – tölum um hönnun og arkitektúr 28. janúar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur fyrir opnum fyrirlestrum í vetur þar sem sjónum er beint að stöðu og framtíð hönnunar og arkitektúrs.
Á fyrsta fyrirlestri nýs árs beinum við sjónum að sköpunarkraftinum, hugmyndauðgi og hvernig við leysum áskoranir með sterkum hugmyndum og notum skapandi hugsun til að útskýra, vekja athygli, hrista upp í, jafnvel ögra. Hugmyndir eins og þær birtast í miðlun upplýsinga og samskiptum.
Óður til sköpunarkraftsins á nýju ári!
Fjórir sérfræðingar á sviðinu flytja snörp erindi og taka svo þátt í umræðum.
– Arnar Halldórsson, sköpunarstjóri (CD) og einn af eigendum sköpunarstofunnar Brandenburg
– Eðvarð Atli Birgisson, grafískur hönnuður (AD) Kolibri
– Kristín Eva Ólafsdóttir, hönnuður og framkvæmdastjóri Gagarín
– Rán Flygenring, hönnuður, myndskreytir og rithöfundur
Bergur Finnbogason, sköpunarstjóri (CD) CCP stjórnar umræðum og fundarstjóri er Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
Auður hugmynda 28. janúar kl. 9.00 í Grósku. Ókeypis inn og öll velkomin!
Fyrirlestraröðin Tölum um hönnun og arkitektúr er unnin í samstarfi við Grósku, Vísindagarða Háskóla Íslands og Bláa lónið.


