Dögg og Dýpi opnuðu sýninguna Mitt á milli á 3daysofdesign í Kaupmannahöfn

Mikil stemning ríkti í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn við opnun sýningarinnar Mitt á milli, þar sem verk eftir Dögg Guðmundsdóttur og kalkmálning frá Dýpi komu saman í sýningu sem sótti innblástur til íslenskrar náttúru. Sýningin varpar ljósi á tengsl hönnunar við náttúru, tíma og minningar og endurspeglar aukna áherslu á sjálfbærni, ekki aðeins í efnisnotkun heldur einnig í félagslegu og tilfinningalegu gildi. Gestir hvaðanæva að fjölmenntu og nutu opnunarinnar.
Sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, Pétur Ásgeirsson, ávarpaði gesti og opnaði sýningarnar formlega ásamt Höllu Helgadóttur, framkvæmdastjóra Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
Á sýningunni eru bæði ný og nýleg verk eftir Dögg Guðmundsdóttur, sem ýmist voru unnin fyrir Snedkerens Efterårsudstilling, sem er 45 ára gömul rótgróin hönnunarsýning haldin árlega sem leggur áherslu á samstarf hönnuða og smiða, og Danmarks Næste Klassiker, sem er danskur raunveruleikaþáttur um húsgagnahönnun þar sem hönnuðir keppa um að skapa húsgögn sem geta orðið dönsk hönnunarklassík.
Dýpi hófst sem frumkvöðlaverkefni, þróað af þeim Sirrý Ágústsdóttur, frumkvöðli og Árnýju Þórarinsdóttur, arkitekt og er fyrsta íslenska kalkmálningin sem unnin er úr vottuðu sjávarkalki. Málningin andar einstaklega vel, er umhverfisvæn, plastlaus og frábært dæmi um hvernig nýta má náttúrulegt hráefni sem fellur til í miklu magni með nýskapandi hætti. Dýpi var tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2025.
Sýningarstjóri er Ólöf Rut Stefánsdóttir, þverfaglegur skapandi stjórnandi sem starfar á sviði hönnunar, viðburða og miðlunar. Hún hefur í gegnum árin unnið með fjölmörgum hönnuðum og listamönnum og frá árinu 2020 hefur hún verið stjórnandi í Ásmundarsalar, menningarhúss í Reykjavík.
Hátíðin 3daysofdesign hefur verið haldin árlega síðan 2013 og er orðin stærsta hönnunarhátíð Skandinavíu. Hátíðin teygir anga sína víða um Kaupmannahöfn, fer fram í sýningarsölum, verslunum, götum, galleríum, sendiráðum og víðar.
Þetta er í fjórða sinn sem Miðstöð hönnunar og arkitektúrs tekur þátt í 3daysofdesign í samstarfi við íslenska sendiráðið í Danmörku og Íslandsstofu.
Sýningin verður aðgengileg á opnunartíma sendiráðsins, kl. 09-16 alla virka daga til 18. ágúst.
Hér má sjá myndir af opnuninnni frá Hildi Maríu, ljósmyndara:

























