Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Dýpi tengir íslenska og finnska hönnun á Helsinki Design Week

7. september 2026

Dýpi tók þátt í Helsinki Design Week í Finnlandi í vikunni, bæði sem hluti af hönnunar sýningunni Habitare Pro og viðburðinum Design Diplomacy í íslenska sendiráðinu í Helsinki. Með þátttökunni gafst Dýpi tækifæri til að kynna sig á alþjóðlegum vettvangi og skapa ný tengsl milli íslensks og finnsks hönnunarsamfélags.

Á Habitare Pro var Dýpi hluti af Habitare Choice-svæðinu, sem leggur áherslu á fyrirtæki og verkefni sem vinna markvisst að ábyrgri og sjálfbærri framtíð. Svæðið var hannað af finnska innanhúss stílistanum Susanna Vento og sýningarrýmið sem spannaði tæplega 200 fermetra var málað með sérstaklega útfærðum lit frá Dýpi sem ber heitið Flæðamál (Tidelines).

Dýpi er íslenskt hönnunar- og nýsköpunarfyrirtæki sem þróar málningu úr kalkþörungum úr Arnarfirði á Vestfjörðum. Dýpi er gott dæmi um hvernig staðbundið hráefni getur orðið upphafið að nýrri hönnunarvöru og hvernig efni sem á sér rætur á ákveðnum stað getur ferðast út fyrir landsteinana og öðlast nýtt samhengi. Dýpi var tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2025 sem vara ársins.

Ólíkar greinar hönnunar mætast 

Í Design Diplomacy í íslenska sendiráðinu í Helsinki var íslenskum og finnsku, hönnuðum stefnt saman í persónulegu samtali. Design Diplomacy er alþjóðlegt verkefni þróað af Helsinki Design Week sem leiðir saman hönnuði frá ólíkum löndum og skapar svigrúm fyrir samtal og ný tengsl.

Nína Björk Jónsdóttir, nýskipaður sendiherra Íslands í Helsinki, opnaði viðburðinn með ræðu um mikilvægi hönnunar og þau tengsl sem geta skapast í gegnum hana. Þura Stína Kristleifsdóttir kynnti HönnunarMars og lagði áherslu á þau sterku tengsl sem þegar eru til staðar milli hönnunarsamfélaganna í Reykjavík og Helsinki, enda eru báðar borgirnar mikilvægur hluti af hátíðunum þar sem hönnun tekur yfir gallerí, vinnustofur, söfn, verslanir og almenningsrými. Nína fjallaði líka um sterk tengsl á milli HönnunarMars og Helsinki Design Week, en Design Diplomacy viðburðir hafa verið haldnir á HönnunarMars í mörg ár, í samstarfi við og innblásnir af Helsinki Design Week. 

Á næsta ári verður Design Diplomacy aftur hluti af HönnunarMars, þar sem viðburðirnir fara fram í sendiráðum í Reykjavík og gefa hönnuðum frá ólíkum löndum tækifæri til að hittast, deila hugmyndum og mynda ný tengsl.

Að þessu sinni mættust svo tveir hönnuðir úr ólíkum greinum: finnski skartgripahönnuðurinn Linda Toye og íslenski arkitektinn og frumkvöðullinn Árný Þórarinsdóttir, annar stofnenda Dýpis.

„Það var mjög áhugavert og gaman að taka þátt í Design Diplomacy. Það myndaðist skemmtilegt flæði á milli tveggja þverfaglegra hönnuða og stemmningin var létt og einlæg. Það var líka sérstaklega skemmtilegt að koma í íslenska sendiráðið í Helsinki og mikill heiður að viðburðurinn skyldi vera sá fyrsti hjá nýskipuðum sendiherra, Nínu Björk Jónsdóttur,“ segir Árný.

Samtal þeirra snerist meðal annars um efni, staði, sköpun og ólíkar leiðir hönnuða til að vinna með umhverfi sitt. Í kjölfarið myndaðist líflegt samtal milli hönnuða og gesta og héldu umræðurnar áfram langt eftir að formlegri dagskrá lauk.

Viðburðurinn var haldinn á heimili íslenska sendiherrans í Helsinki. Húsið fylltist fljótt af gestum og færri komust að en vildu. Kvöldið varð þannig að lifandi vettvangi fyrir samtal og tengslamyndun milli íslensks og finnsks hönnunarsamfélags.

Þátttaka Dýpis á Helsinki Design Week undirstrikar hvernig hönnun getur skapað tengingar þvert á landamæri. Frá kalkþörungum úr Arnarfirði til hönnunarsamfélagsins í Helsinki varð íslenskt hráefni og íslensk hönnunarhugmynd hluti af alþjóðlegu samtali um hugmyndir, innblástur, efni, staði og framtíð hönnunar.

Tengt efni

  • Hönnuður í fókus: Sóldís Finnbogadóttir

  • Christian Bason er danskur stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður (Ph.D.) sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf í nýsköpun og hönnun innan opinbera geirans.

    MasterClass með Christian Bason: Endurhugsum hvernig við sköpum verðmæti

  • Hönnunarsjóður: Opinn kynningarfundur um gerð umsókna

Dagsetning
7. september 2026
Höfundur
Þura Stína Kristleifsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Helsinki Design Week
  • Dýpi
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200