Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Fischersund tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2025

23. október 2025

Fischersund talar til allra skilningarvita í gegnum ilm, tónlist og myndlist. Frá stofnun Fischersunds hefur skynheimurinn stækkað og styrkst um leið og verkum og vörum hefur fjölgað. Fischersund er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2025 í flokknum verk.

Fischersund hefur lagt áherslu á heildræna upplifun fyrir skynfærin með því að tengja ilmi við sjón- og tónverk. Margbreytileg og áhrifarík upplifun sem Fishersund skapar er til þess fallin að byggja brú á milli minninga sem við tengjum við staði og stundir, ólík tímabil og samhengi. 

Frá stofnun hefur Fischersund vaxið og dafnað í takt við kjarnaða heildarmynd og vöruúrval – ilmvötn, kerti, reykelsi, textílverk, hljóðheima, skynupplifun og sýningar. Þróun sem undirstrikar að verkið sjálft er ekki bundið við einstaka hluti eða sýningar heldur heim upplifunar sem heldur áfram að þroskast og mótast.

Í því samhengi má nefna sýninguna Faux Flora, þar sem þessi nálgun nær nýjum hæðum. Þar vinnur teymið út frá ímynduðu jurtaríki í gegnum ilm, hljóð og myndverk sem endurspegla lífsferil plantna. Sýningin er bæði fagurfræðileg og tilfinningaleg rannsókn á tengslum mannsins við náttúruna og sýnir hvernig Fischersund nýtir ólíka miðla til að móta heildrænan, draumkenndan og persónulegan heim.

Fischersund hefur frá árinu 2017 þroskast og sprungið út sem heildstætt og lifandi verk sem sameinar ólíka miðla til að skapa ásýnd og vörur. Með þessari nálgun hafa þau skapað farveg fyrir hönnun og list sem samofin ferli, þar sem skynjunin sjálf er efniviðurinn og upplifunin endanleg afurð.

–

Fischersund listasamsteypa eru systkinin Inga, Jónsi, Lilja og Sigurrós Birgisbörn ásamt Sindra, Albie og Kjartani Hólm. Nálgun þeirra einkennist af samvinnu þar sem ólík sjónarhorn og skapandi aðferðir mætast. Lifandi samtal milli listar og daglegs lífs sem þau útfæra með sínum miðlum svo úr verður sameiginlegt ferðalag. Þessi nálgun gerir hópinn sveigjanlegan, nokkuð tilraunaglaðan og opinn fyrir að víkka út skynheiminn sem þau hafa skapað.

Verðlaunaafhending Hönnunarverðlauna Íslands 2025 fer fram í Grósku þann 6. nóvember næstkomandi ásamt samtali því tengdu. Taktu daginn frá!

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í tólfta sinn í ár og eru veitt í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk. Auk þess verður veitt viðurkenning fyrir Bestu fjárfestingu í hönnun og Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands. 

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Íslandsstofu, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa Lóninu. 

Tengt efni

  • Dýpi tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands 2025

  • Lavaforming tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2025

  • Félagsbústaðir á Sjómannaskólareit tilnefndir til Hönnunarverðlauna Íslands 2025

Dagsetning
23. október 2025
Höfundur
Klara Rún Ragnarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Fagfélög
  • GREINAR
  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200