Frábær stemning á Hannað í Grósku á HönnunarMars!

Viðburðurinn Hannað í Grósku fór fram 8. maí síðastliðinn í tengslum við HönnunarMars og var samstarfsverkefni Grósku/Heima, Vísindagarða og Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Markmiðið var að varpa ljósi á það hvernig hönnun kemur við sögu í fjölbreyttri starfsemi fyrirtækja í húsinu og það er óhætt að segja að dagskráin hafi sýnt það með skemmtilegum og lifandi hætti.
Fjölmennt var í stóra sal Grósku þar sem fram fóru stutt, fjölbreytt og áhugaverð erindi um hönnun í víðum skilningi, allt frá upplifun og stafrænum lausnum til mörkunar, arkitektúrs og stefnumótunar. Erindin gáfu skemmtilega innsýn í þau fjölmörgu verkefni sem unnin eru í húsinu.
Þátttakendur voru Gróska/Heimar, CCP, Tröð teiknistofa, Pikkoló, Miðstöð Hönnunar og Arkitektúrs, Strik, Gagarín, Almannarómur, Tulipop Studios, Íslandsstofa, Esja Arkitektar, Brandenburg, Plan Studio, EnnEmm og Vísindagarðar.
Að erindum loknum var boðið upp á veitingar í miðrými Grósku. Þar skapaðist frábær stemning þar sem gestir gátu haldið samtalinu áfram og tengst þvert á fyrirtæki og greinar.


















Stefnt er að því að Hannað í Grósku verði árlegur viðburður þar sem fólk í húsinu, samstarfsaðilar, nágrannar og almenningur koma saman, fá innsýn í fjölbreytta starfsemi Grósku og tengjast á lifandi og skemmtilegum vettvangi. Viðburðurinn sýndi vel hversu mikil gróska er í húsinu og hversu sterk tenging er á milli hönnunar, nýsköpunar og samfélagsins sem hefur orðið til í Grósku.


