Kraftmikil dagskrá á DesignTalks í ár

Allir fyrirlesarar DesignTalks 2026 hafa nú verið afhjúpaðir og stefnir í einstaklega kraftmikla ráðstefnu í ár. DesignTalks er einn af lykilviðburðum HönnunarMars og í þetta sinn er áherslan lögð á tengingar, hvernig hönnun getur brúað bil á milli fólks, hugmynda og samfélaga á tímum þar sem við erum bæði stöðugt tengd en á sama tíma einnig aftengd.
Dagskráin dregur fram ýmsar skemmtilegar tengingar á milli þeirra sem koma fram og endurspeglar breidd og fjölbreytni hönnunar í samtímanum. Gestir fá innsýn í vinnuferli og hugsunarhátt þeirra sem standa á bak við áhrifamikla hönnun og móta heiminn í kringum okkur í dag sem á erindi við alla skapandi huga.
DesignTalks fer fram 6. maí í Silfurbergi í Hörpunni frá kl. 9:00 til 17:00. Viðburðurinn fer fram á ensku og honum lýkur með DesignDrinks.
Dagskráin er bæði þétt og spennandi.
Fyrir hádegi stíga á svið:
Hjalti Karlsson, grafískur hönnuður og stofnandi Karlssonwilker
Stefan Sagmeister, einn áhrifamesti hönnuður samtímans
Terta // Elliðaárstöð, Magnea Guðmundsdóttir arkitekt og Margrét Hugadóttir vísindamiðlari
Kristjana S. Williams, listakona og hönnuður
Eftir hádegi taka svo við:
Dorte Mandrup, arkitekt og stofnandi Dorte Mandrup Arkitekter,
1+1+1, tilraunasamstarfsverkefni Hugdettu, Aalto Aalto og Petru Lilju
RANRA, hönnuðirnir Arnar Már Jónsson og Luke Stevens og stofnendur tískumerkisins
1 Granary, Olya Kuryshchuk stofnandi og yfir ritstjóri og Jorinde Croese, ritstjóri sem standa að áhrifamiklum vettvangi á sviði tísku og hönnunarfræðslu.



















DesignTalks hefur frá upphafi verið lykilviðburður HönnunarMars og hefur fest sig í sessi sem vettvangur innblásturs og lifandi samtals milli fremstu hönnuða og arkitekta samtímans. Hér mætast hugmyndir, fólk og framtíðarsýn á einum stað, og fyrir þá sem vilja vera í fremstu röð þegar nýjar stefnur og hugsun mótast er þetta viðburður sem ekki má missa af. Miðasala er hafin og ljóst að áhuginn er mikill.
*Dagskrá er birt með fyrirvara.


