Gagnvirk list og hönnun er ný námsleið Listaháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík

Opnað hefur verið fyrir umsóknir að nýrri námsleið í hönnun sem nefnist INDA - gagnvirkt list og hönnun. INDA er skammstöfun á Interactive Design and Art og setur námið þannig í alþjóðlegt samhengi hönnunar og listar. Námið sem er til þriggja ára er 180 einingar og samanstendur af fræðilegum námskeiðum, tæknilegri þjálfun og verklegum vinnustofum.
INDA byggir á þverfaglegri nálgun þar sem samstarf lista-, vísinda- og tæknigreina skapar fjölbreytt námsumhverfi. Kennsla fer fram í fyrirlestrum, á verkstæðum og í sameiginlegu vinnurými nemenda, bæði í húsnæði Listaháskólans og Háskólans í Reykjavík.
Nemendur í INDA læra að smíða verkfæri, með samspili margbreytilegrar tækni, til að nota á gagnvirkan hátt í eigin sköpunarverkum. Áhersla er lögð á samvinnu nemenda, sköpunargleði, frumkvæði og frumleika við að móta hugmyndir að verkum sem bregðast við fólki við mismunandi aðstæður og umhverfi - búa til samtal milli manneskju, tækni og efnis þar sem áhorfendur geta brugðist við, haft áhrif á framvindu og tekið þátt í sköpun verksins.
„INDA er námsleið sem hentar þeim sem vilja nota forritun sem listrænan miðil í fjölbreyttum verkefnum á sviði lista og tækni. Við viljum laða til okkar fólk úr ýmsum áttum með mismunandi bakgrunn sem hefur brennandi áhuga á að þróa nýjar miðlunarleiðir til frásagnar og upplifunar með tæknihönnun og þekkingu,“ segir Þóranna Dögg Björnsdóttir, fagstjóri námsleiðarinnar.
Þóranna er listamaður og listkennari. Í gegnum tíðina hefur hún starfað að þverfaglegum verkefnum í listsköpun sinni, þar sem þátttaka áhorfenda er gjarnan listrænn útgangspunktur við mótun verkanna. Verkin eru iðulega samblanda af mynd og hljóði og taka þannig ýmis form í gegnum lifandi gjörninga, innsetningar og skúlptúra.

„Í upphafi árs var ég ráðin sem dósent við Hönnunardeild LHÍ og gegni nú hlutverki fagstjóra INDA. Sem fagstjóri starfa ég með Katrínu Ólínu Pétursdóttur, deildarforseta Hönnunardeildar ásamt Henning Árnóri Úlfarssyni, deildarforseta Tölvunarfræðideildar HR við að móta sýn og stefnu námsleiðarinnar,“ segir Þóranna.
Traustur grunnur til áframhaldandi sérhæfingar
„Það var mikill áhugi hjá LHÍ og HR að koma á sameiginlegri námsbraut á bakkalárstigi í starfrænni sköpun, gagnvirkri miðlun og hreyfimyndagerð, enda eftirspurn eftir framsæknu námi á því sviði mikil. Árið 2023 hlutu skólarnir styrk úr Samstarfssjóði háskólanna á vegum Háskóla, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytisins til að þróa verkefnið og var ég ráðin sem verkefnastjóri til að leiða það starf ásamt stýrihópi verkefnisins.“
Þóranna segir að námið veitir traustan grunn til áframhaldandi sérhæfingar innan skapandi greina, hönnunar og tækni og undirbýr nemendur til að móta eigin starfsvettvang, sem getur verið á breiðu sviði skapandi greina og tölvutækni, og til að verða leiðandi í samvinnu í umhverfi tækni og lista. Það veitir tækifæri fyrir útskrifaða nemendur að starfa með fyrirtækjum á sviði tækni og hönnunar þar sem unnið er að því að búa til nýjar upplifanir á sviði menningar og fræðslu - þar sem ný tækni er notuð við gerð sýndarveruleikasýninga, hreyfimyndalistaverka og tölvuleikjaheima.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir
Námið byggir á samstarfi Listaháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík þar sem sérhæfing úr báðum skólum er sameinuð og miðar að því að örva nýja hugsun og tjáningarmöguleika í fjölbreyttu samhengi. Námskeiðin eru kennd við Hönnunardeild LHÍ og við Tölvunarfræðideild HR þar sem nemendum eru boðin fjölbreytt tæki og tól sem þau geta notað til að móta námið sem best eftir því hvert þau stefna að lokinni útskrift.
„Með samstarfinu aukast valmöguleikar nemenda þar sem þeir geta valið áfanga út báðum skólum eftir áhuga og sérsviði. Nemendur fá aðgang að verkstæðum og tækniverum í báðum skólum, læra að vinna í teymum hönnuða, tæknisérfræðinga, lista- og fræðafólks,“ segir Þóranna að lokum.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í IDNA námið en umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2026. Allar nánari upplýsingar um námsleiðina er að finna hér að neðan.