Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

HönnunarÞing 2026: Þar sem hönnun, nýsköpun og orka mætast á Húsavík

23. september 2026

Dagana 25.-26. september fer HönnunarÞing // Design Thing fram á Húsavík í fjórða sinn. Hátíðin er einstakur vettvangur þar sem hönnun, nýsköpun og samfélag mætast, og jafnframt eina hátíð sinnar tegundar utan höfuðborgarsvæðisins.

Yfirskrift HönnunarÞings í ár er orka og dagskráin endurspeglar fjölbreyttar birtingarmyndir hennar við hönnun og nýsköpun. Þar verður fjallað um allt frá orku í innviðum og auðlindum til orku í hugmyndum, samfélögum, menningu og mannlegum tengslum.

„Við höfum frá upphafi lagt áherslu á að skapa vettvang þar sem fólk úr ólíkum geirum getur mæst, kynnst og rætt saman. HönnunarÞing er ekki aðeins ráðstefna heldur tilraun til að búa til aðstæður þar sem nýjar hugmyndir og samstarf geta orðið til,“ segir Stefán Pétur vöruhönnuður og dagskrárstjóri HönnunarÞings.

Frá Húsavík til Feneyja og til baka

Meðal þeirra sem stíga á svið er arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir, sem ásamt Arnari Skarphéðinssyni kynnir verkefnið Lavaforming. Verkefnið vakti mikla athygli sem framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr árið 2025 og á sér rætur í rannsóknum á því hvernig mannvirki framtíðarinnar gætu orðið til með nýjum, sjálfbærari aðferðum. Í erindinu mætast hönnun, vísindi og framtíðarsögur á einstakan hátt.

Þessi tenging við Feneyjatvíæringinn undirstrikar þá alþjóðlegu vídd sem HönnunarÞing hefur lagt rækt við frá upphafi. Þrátt fyrir að hátíðin fari fram á Húsavík eiga samtölin sem þar skapast oft erindi langt út fyrir landsteinana.

Orkan í ásýndinni

Á dagskránni verður einnig erindi frá Kolofon, hönnunarstofunni sem leiddi endurmörkun Landsvirkjunar. Þar verður fjallað um hvernig hægt er að túlka jafn óáþreifanlegt fyrirbæri og orku í gegnum liti, leturgerðir, hljóð og hreyfingu.

Erindið veitir innsýn í það hvernig öflug vörumerki verða til og hvernig hönnun getur hjálpað fyrirtækjum að segja samfellda sögu til langs tíma.

Orkulæsi, tengingar og þátttaka

Í erindinu Vertu fjöltengi! bjóða Margrét Huga og Beta til samtals um orkulæsi, hönnun og samfélagslega þátttöku. Þar verður spurt hvernig hægt sé að gera eitthvað jafn ósýnilegt og orku sýnilegt og skiljanlegt fyrir almenning.

Erindið fjallar um hönnun sem brú á milli sérfræðiþekkingar og almennings og hvernig skapandi miðlun getur aukið skilning, forvitni og þátttöku.

Hönnun sem samfélagsleg aðgerð

Hönnuðurinn Búi Bjarmar Aðalsteinsson verður einnig á HönnunarÞingi og kynnir verkefnið Planta sér hér!

Þar mætast húmor, samfélagsgagnrýni og hönnun í erindi sem lýst hefur verið sem bæði persónuþroskandi og loftslagsvænu. Í gegnum Mannyrkjustöð Reykjavíkur er spurt hvað við getum lært af plöntum um vöxt, seiglu, samfélag og tengsl.

Hitum upp samtalið og viðurkenning forseta Íslands

Verkefnið Tengja, sem nýlega hlaut sérstaka viðurkenningu forseta Íslands, verður einnig til umfjöllunar á HönnunarÞingi.

Tengja er samstarfsverkefni Veitna og nemenda við Listaháskóla Íslands og snýst um að umbreyta afgangsvarma úr hitaveitukerfinu í hlý almenningsrými. Verkefnið sýnir með skýrum hætti hvernig hönnun getur gert ósýnilega innviði sýnilega og umbreytt vannýttum auðlindum í samfélagsleg verðmæti.

Hvernig hönnum við rými sem hreyfa við fólki?

Í heimi þar sem upplýsingar streyma stöðugt til okkar verður sífellt mikilvægara að skapa upplifanir sem fólk man.

Það er kjarninn í erindi Gagarín, sem fjallar um hvernig hægt er að umbreyta flóknum hugmyndum í gagnvirkar upplifanir sem virkja fólk. Með verkefnum víðs vegar um heim hefur Gagarín sýnt hvernig hönnun, tækni og frásögn geta sameinast í rýmum sem skapa tengingar milli fólks og hugmynda.

Orkan sem tengir

HönnunarÞing hefur á undanförnum árum skapað sér sérstöðu sem vettvangur þar sem atvinnulíf, menning, háskólasamfélag, frumkvöðlar, hönnuðir og almenningur mætast á jafnréttisgrundvelli.

Á Húsavík verða því ekki aðeins flutt erindi. Þar verða til samtöl, tengingar og mögulega hugmyndir sem eiga eftir að lifa langt umfram hátíðina sjálfa.

HÖNNUN ⚬ NÝSKÖPUN ⚬ ORKA

Húsavík, 25.-26. september 2026

Dagskrá og nánari upplýsingar: www.hradid.is/honnunarthing

Tengt efni

  • Blásum í HönnunarMars lúðurinn! Opnað fyrir snemmskráningu 2027

  • Fjallað var um framtíðina og stórar breytingar á vel heppnuðum fyrsta fyrirlestri vetrarins

  • Framúrskarandi fagfólk mótar DesignTalks 2027

Dagsetning
23. september 2026
Höfundur
Klara Rún Ragnarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • GREINAR
  • Hönnunarþing

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200