Hring eftir hring eftir hring - tölum um hönnun og arkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs heldur áfram með fyrirlestraröð þar sem sjónum er beint að stöðu og framtíð hönnunar og arkitektúrs. Það er virkilega ánægjulegt hversu vel sóttir fyrirlestrarnir hafa verið. Næsti fyrirlestur verður haldinn miðvikudaginn 11. febrúar kl. 9 í Grósku en húsið opnar 8:30 með kaffi og kruðerí.
Nú á öðrum fyrirlestri nýs árs beinum við sjónum að hringrás efna í vörum og textíl og hvernig hönnuðir fara að því að taka efnastrauma og beina þeim í nýja farvegi og endurskapa. Hvað er að gerast á því sviði hér? Hvernig eru hönnuðir að endurvinna efni og hvaða nýju efni er verið að þróa? Hvaða áskoranir eru hönnuðir að glíma við? Hvað gengur vel og hvað gengur ekki eins vel?
Fjórir sérfræðingar á sviðinu flytja snörp erindi um endurvinnslu efnis, ný efni og reynslu af þeim, kosti og galla og taka svo þátt í umræðum, sem Bergur Finnbogason, sköpunarstjóri (CD) hjá CCP stjórnar.
Fyrirlesarar:
-Emilía Borgþórsdóttir, iðnhönnuður og umhverfisfræðingur (MSc),Verkefnastjóri sjálfbærni hjá Húsasmiðjunni
-Tobia Zambotti, innanhússhönnuður
-Berglind Ósk Hlynsdóttir, hönnuður hjá BoskBoskBosk
-Katrín María Káradóttir, prófessor í LHÍ

