Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Tölum um arkitektúr: ný myndskeið í loftið

3. febrúar 2026

Umræða um manngert umhverfi og arkitektúr hefur aukist verulega í íslensku samfélagi að undanförnu og fyrir því eru margar ástæður svo sem þétting byggðar, ný hverfi, áskoranir í húsnæðismálum ungs fólks, birtustig í íbúðum, þátttaka Íslands í Feneyjartvíæringi í arkitektúr, umhverfismál og skiptar skoðanir á gæðum þess sem byggt er – svo ekki sé minnst á Græna gímaldið og hvernig ósköpunum það gat orðið til. 

Byggt umhverfi hefur áhrif á daglegt líf okkar allra og þess vegna er mjög mikilvægt að efla umræðu og þekkingu fólks á því hvernig gott og vandað húsnæði og umhverfi sem þjónar fólki og tryggir lífsgæði íbúa verður til. 

En Miðstöð hönnunar og arkitektúrs fagnar umræðunni og tekur þátt í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og kynnir til leiks nýja röð myndbanda sem nefnist Tölum um arkitektúr og eru eru stutt myndskeið sem birtast á samfélagsmiðlum og vef, þar sem markmiðið er að varpa ljósi á breidd arkitektúrs og tengja saman ólíkar kynslóðir og sýn.

Í stuttum og skemmtilegum myndskeiðum hittum við arkitekta sem segja frá uppáhalds byggingum sínum, hverfi eða og stað í manngerðu umhverfi. Hvað gerir hverfi gott? Hvernig birtast gæði í arkitektúr? Og af hverju skiptir hönnun máli í daglegu lífi?

Fyrsti viðmælandinn er Hildur Gunnlaugsdóttir, arkitekt og umhverfisfræðingur, sem kynnir sitt uppáhalds hverfi, Efstaleiti, nýtt hverfi sem er gott dæmi um vel heppnaða þéttingu byggðar og hannað af arkitektastofunum Hornsteinum og Nordic Office of Architecture.

Á næstu vikum munu birtast fleiri myndbönd þar sem við köfum dýpra í arkitektúrinn – fylgist með!

Myndskeið - Hildur Gunnlaugsdóttir

Fara á Instagram

Tengt efni

  • Kallað eftir hugmynd að sýningu fyrir hönnunarhátíðina 3daysofdesign

  • Samfélag hönnuða og arkitekta í Grósku

  • Opið fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð

Dagsetning
3. febrúar 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Arkitektúr
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200