Opið fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð

Opið er fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð. Um er að ræða fyrri úthlutun ársins 2026 en umsóknarfrestur rennur út þann 28. janúar 2026. Hægt er að sækja um þrjár tegundir styrkja auk ferðastyrkja.
UMSÓKNARFRESTIR 2026
Fyrri úthlutun ársins - Almennir- & ferðastyrkir
11. nóvember 2025 – 28. janúar 2026
Úthlutun 12. mars 2026
Seinni úthlutun ársins - Almennir- & ferðastyrkir
27. mars – 16. september
Úthlutun 21. október 2026
Hönnunarsjóður veitir styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs: þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk ferðastyrkja.
Hlutverk Hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi en sjóðurinn er fjármagnaður af stjórnvöldum. Hönnunarsjóður stuðlar einnig að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar með því að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis.
Hönnunarsjóður veitir þrennskonar almenna styrki:
Þróunar- og rannsóknarstyrkir: Styrkja rannsóknir og þróun nýrra hugmynda eða lausna. Verkefni sem hlotið hefur þróunar- og rannsóknarstyrk á möguleika á að fá verkefnastyrk síðar.
Verkefnastyrkir: Styrkja nýjar hugmyndir eða lausnir sem búið er að þróa og móta og eru komin á útfærslu- og framkvæmdastig. Verkefni sem hlotið hefur verkefnastyrk á möguleika á að fá markaðs- og kynningarstyrk síðar.
Markaðs- og kynningarstyrkir: Styrkja verkefni sem komin eru af útfærslu- og framkvæmdastigi og eru fullmótuð og tilbúin til markaðssetningar.
Ferðastyrkir: Auka möguleika hönnuða og arkitekta á því að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum eða viðskiptastefnumótum. Hægt er að sækja um ferðastyrk fyrir einn einstakling eða fleiri til sömu ferðar. Veittir verða allt að 15 ferðastyrkir í hverri úthlutun að upphæð 150 þúsund hver. Mælt er með því að umsækjendur ferðastyrkja vegna sama verkefnis/ferðar sæki um sem hópur en ekki hver fyrir sig.


