Hvernig veljum við fulltrúa Íslands á Feneyjatvíæringinn í arkitektúr?

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs býður þér á umræðufund um valferli vegna þátttöku Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr þriðjudaginn 9. desember kl. 9.00-10.00.
Ísland tók þátt í fyrsta sinn með opnu kalli 2025. Nú hafa náðst samningar við stjórnvöld og erum við spennt að fara að vinna að sýningu íslenska skálans fyrir árið 2027. Margar spurningar vakna við þessa vinnu og ein af þeim hafa margir áhuga á að ræða: Hvernig veljum við fulltrúa Íslands á Feneyjatvíæringinn í arkitektúr?
Hvernig veljum við fulltrúa Íslands á Feneyjatvíæringinn í arkitektúr?
Margar leiðir er hægt að fara og því efnum við til umræðufundar til að ræða þetta beint við fag- og hagaðila.
Fundurinn fer fram í Fenjamýri.
Til að átta okkur á mætingu hvetjum við þig til að skrá þig hér:
https://forms.gle/tR2nwPwY6sCoK6db9
Hlökkum til að sjá þig!


