Yljandi ilmtónleikar Fischersund á tískuvikunni í París

Fischersund heldur ilmtónleika á tískuvikunni í París í dag, fimmtudaginn 5. mars. Fischersund í samstarfi við Dover Street Market Paris býður gestum og gangandi í einstakt og yfirgripsmikið kvöld þar sem lifandi tónlist, myndlist og ilmur renna saman í eina heildstæða skynupplifun. „Við erum mjög heppin og snortin yfir því hversu mikill áhugi er á Fischersund í heiminum,“ segir Lilja Birgisdóttir í Fischersund.
Tónleikarnir standa yfir í 50 mínútur og eru samdir og fluttir af Fischersund Music Collective. Þar innanborðs eru Jónsi úr SigurRós, Sin Fang og Kjartan Holm. Verkið skiptist í fjóra kafla þar sem draumkennd myndræn sýn, tónlist og ilmur renna saman og mynda eina heild.
Fischersund hafa verið í farsælu samstarfi með Dover Street í að verða tvö ár núna. „Það var mikill heiður fyrir okkur að vera tekin inn í Dover Street Market og mjög skemmtilegt þegar þau buðu okkur að vera með tónleika á tískuvikunni,“ segir Lilja.
„Þetta er það skemmtilegasta sem við gerum, að vinna saman, tengjast fólki og gera ilmi og list þannig að það er óhætt að segja að við séum að lifa drauminn akkúrat núna.“

Viðburðurinn fléttast saman við kynningu á nýjasta ilm Fischersund, Faux Flora No. 1. Ilmurinn er innblásinn af nærri 500 innlendum plöntutegundum á Íslandi, sem og vísindalegu samhengi milli lyktarskins og minnis. Innsetningin er yfirgripsmikil skynræn upplifun sem felur í sér ferðalag um heim ilmanna. Þetta verður án efa órjúfanlegur hluti af upplifun kvöldsins.
Kvöldið sameinar ilmvatnslist, tónlist og myndlist í samhljómi og skapar hughrif sem lifa áfram í minni gesta löngu eftir að viðburðinum lýkur.
Fischersund var með frábæra og vel heppnaða ilmtónleika á 3daysofdesign í Kaupmannahöfn sl. sumar en þetta er í fyrsta sinn sem þau halda ilmtónleika í París. „En við höfum verið með ilmtónleika í New York, Seattle, Los Angeles, á Írlandi og víðar. Senn munum við tilkynna ilmtónleika á Íslandi - bíðið spennt!“ segir Lilja glöð í bragði.


