Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Kallað eftir nýjum röddum í íslensku hönnunarlífi fyrir FLEY samsýningu Félags vöru- og iðnhönnuða

28. febrúar 2026

FLEY er samsýning Félags vöru- og iðnhönnuða sem er ætluð nýútskrifuðum og upprennandi hönnuðum. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem þessi hópur fær tækifæri til að kynna verk sín, tengjast faginu og stíga sýnilegt skref inn í hönnunarsamfélagið. Hugmyndin kviknaði fyrir tveimur árum upp úr samtali innan félagsins um hvernig mætti styðja betur við þau sem eru að hefja feril sinn og skapa þeim raunveruleg tækifæri til sýnileika.

Félagið óskar eftir verkum frá hönnuðum sem útskrifast hafa úr hönnunarnámi árið 2020 eða síðar og eru meðlimir félagsins. Um er að ræða árganga sem luku námi á krefjandi tímum heimsfaraldurs, þegar tækifæri til sýningarhalds og tengslamyndunar voru takmörkuð. Engar hömlur eru settar á form, efnistök eða miðla og lögð er áhersla á fjölbreytni og ferskar nálganir sem endurspegla framtíð íslenskrar hönnunar. 

Styrkja tensl milli nýrra kynslóða og reyndari hönnuða

„Sýningin var haldin síðast fyrir tveimur árum og þá var mjög vel sótt um. Viðtökurnar voru jákvæðar bæði frá þátttakendum og gestum,“ segir Þórunn Hannesdóttir, stjórnarformaður Félags vöru- og iðnhönnuða.

„Verkefnið hefur fengið mjög góðan meðbyr. FLEY hefur vakið athygli innan hönnunarsamfélagsins og skapað umræðu og stöðu og tækifæri ungra hönnuða. Það hefur einnig styrkt tengsl milli nýrra kynslóða og reyndari hönnuða innan félagsins.“

FLEY hlaut styrk frá Reykjavíkurborg, borgarsjóði á sviði menningarmála 2026 sem gaf tækifæri á að endurtaka sýninguna í ár. 

„Að stíga fyrstu skrefin eftir útskrift getur verið krefjandi. FLEY veitir faglegan ramma og sýnileika á stórum vettvangi, ekki síst þar sem sýningin er hluti af HönnunarMars. Slíkt tækifæri getur opnað dyr að samstarfi, verkefnum og öðrum ævintýrum. Sýningin er vettvangur til að prófa nýjar hugmyndir, fá viðbrögð og byggja upp sjálfstraust sem hönnuður,“ segir Þórunn. 

„Samsýningin er einnig leið til að skapa brú milli náms og atvinnulífs og styrkja samfélag hönnuða til framtíðar. Við hvetjum nýútskrifaða og upprennandi hönnuði til að sækja um og taka þátt. FLEY er vettvangur til að láta ljós sitt skína og vera hluti af lifandi og kraftmiklu hönnunarsamfélagi.“

Nánari upplýsingar um staðsetningu verða kynntar síðar.

Umsóknarfrestur er til 2. mars kl. 23:59 og skal umsókn berast á netfangið voruhonnun@honnunarmidstod.is.

Tengt efni

  • Stórstjarnan Dorte Mandrup á DesignTalks

  • Spennandi ný námslína í hönnun hefst í haust í Háskólanum í Reykjavík

  • FÍT verðlaunin 2026 – Verðlaunahafar

Dagsetning
28. febrúar 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • Vöruhönnun
  • vöru- og iðnhönnun
  • HönnunarMars

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200