Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Ný hönnunarbúð opnar á Laugavegi 114

18. september 2026

Ný hönnunarbúð, 114, opnar í dag að Laugavegi 114. Fjölbreyttur hópur íslenskra hönnuða og skapandi fólks hafa leitt saman hesta sína og mynda eina heild í 114. Þar verður meðal annars hægt að finna fatnað, skartgripi, keramík, textíl, ilm og list. Stór hluti þess sem fæst í búðinni verður raunar til í sama húsi.

Á bak við 114 standa bræðurnir Rik og Ross McNair frá Skotlandi sem einnig reka fatamerkið Endurtakk. Rik segir frá búðinni en hann er menntaður í fatahönnun og framleiðslutækni frá Glasgow og hefur síðustu tvo áratugi starfað með hönnuðum, meðal annars við framleiðslu, sniðagerð og vöruþróun. Undanfarin fimm ár hefur hann rekið Endurtakk í Reykjavík ásamt Ross.

„Við vinnum með efni sem þegar eru til , gömul föt, gallabuxur og afgangsefni og búum til einstakar flíkur og fylgihluti. Við elskum efnin og sjálft handverkið,“ segir Rik. Sú nálgun hafi að mörgu leyti lagt grunninn að 114.

Búðin sem gluggi inn í skapandi samfélag

Hugmyndin að 114 kviknaði þegar vinnustofa Endurtakk flutti inn í Hlemmur.haus, þar sem fyrir var samfélag sjálfstætt starfandi hönnuða og skapandi fólks. Margir þeirra sem eiga verk í búðinni starfa í vinnustofum í húsinu og við opnunina eru um 80% þess sem þar er til sölu framleidd á staðnum.

„114 er verslun, en hún sprettur úr lifandi skapandi umhverfi. Búðin er í raun sá hluti samfélagsins sem snýr út að Laugaveginum og gefur fólki tækifæri til að kynnast bæði verkunum og fólkinu á bak við þau. En hinum megin í búðinni fer fram skapandi vinna,“ segir Rik.

Við valið á hönnuðum í búðina segir Rik gæði og sterka persónulega rödd skipta mestu máli. Markmiðið sé ekki að allt falli að einu ákveðnu útliti. „Það sem tengir verkin saman er ekki að þau séu öll eins. Þau eiga það sameiginlegt að koma úr sjálfstæðri skapandi vinnu og hafa skýr tengsl við manneskjuna sem bjó þau til.“

Hönnuðirnir eru eftirfarandi:

Endurtakk
Boskboskbosk
Ýrúrari
Flöff
Fözz Studio
Magnea
Sæberg Studio
No No Yes Of Course
Hafmeyja
Just Jewelry
Ilmur & sjór
Studio CH
Theo Ike
Acid Habibi
Elf.ancy Jewelry
Indigo Jewelry
Midnight Mar
Katré Clay

Verslun en einnig síbreytilegur vinnustaður

Rik og Ross sjá fyrir sér að 114 verði síbreytilegur staður þar sem verslun og skapandi starf mætast. Framundan eru meðal annars vinnustofur, pop-up viðburðir, lifandi sköpun, tónleikar og ýmiss konar uppákomur. „Við viljum að fólk geti gengið inn af Laugaveginum og uppgötvað ekki bara fullunnin verk heldur líka sköpunina og samfélagið á bak við þau. Markmiðið er að 114 verði menningarlegur vettvangur sem byggir á sköpun og heldur áfram að þróast,“ segir Rik að lokum. 

114 opnar að Laugavegi 114 í dag. Opnunarteiti verður haldið frá kl. 15–21 með plötusnúðum og ýmsu öðru skemmtilegu.

Nánar um viðburðinn hér.

Tengt efni

  • Fjallað var um framtíðina og stórar breytingar á vel heppnuðum fyrsta fyrirlestri vetrarins

  • „Við eigum fullt erindi í þetta samtal“

  • Við vitum hver greiddi fyrir flísalímið. En hver hannaði húsið?

Dagsetning
18. september 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Viðtal
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200