Nýtt stjórnarfólk bætist í hópinn

Ársfundur Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs fór fram í Grósku 21. maí 2026. Þar farið yfir verkefni liðins árs, reikningar lagðir fram og nýtt stjórnarfólk tók sæti í í ýmsum stjórnum, ráðum og nefndum. Nýr fulltrúi Edda Björg Jónsdóttir, innanhússarkitekt, tekur sæti í stjórn Miðstöðvarinnar, en áfram sitja Þórunn Hannesdóttir, vöruhönnuður, Arnar Halldórsson, sköpunarstjóri Brandenburg, Inga Rut Gylfadóttir, landslagsarkitekt hjá Landslagi og Katrín Jakobsdóttir, ráðgjafi. Gísli Arnarson, grafískur hönnuður, stígur úr stjórn.
Aðrar breytingar urðu í stjórn Hönnunarsjóðs, HönnunarMars og dómnefnd Hönnunarverðlauna
Emilía Borgþórsdóttir, vöruhönnuður var kjörin í stjórn Hönnunarsjóðs en Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir, fatahönnuður steig úr stjórninni. Aðrir í stjórn Hönnunarsjóðs eru Borghildur Sturludóttir, arkitekt og formaður, Greipur Gíslason, ráðgjafi, Ingólfur Freyr Guðmundsson, hönnuður og Þorleifur Gunnar Gíslason, grafískur hönnuður.
Halla Bogadóttir, gullsmiður kemur ný inn í stjórn HönnunarMars en Anton Illugason, formaður og grafískur hönnuður hættir í stjórn hátíðarinnar. Aðrir í stjórn eru Kristján Schram, ráðgjafi, Hildur Gunnlaugsdóttir, arkitekt, Elín Hrund Þorgeirsdóttir, vöruhönnuður og Hrólfur Jónsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Vísindagarða.
Helga Valdís Árnadóttir, grafískur hönnuður og Endre Berentzen, Product & Design officer at Surfs taka sæti í dómnefnd Hönnunarverðlaunanna og einnig Ragna Sigríður Bjarnadóttir, fatahönnuður sem nýr fulltrúi Listaháskóla Íslands. Í dómnefnd Hönnunarverðlauna eru Sigríður Sigurjónsdóttir, vöruhönnuður og formaður, fulltrúi Hönnunarsafns Íslands, Sigurlína Margrét Osuala, keramiker, Bergur Finnbogason, listrænn stjórnandi hjá Fenris Creation og Tor Inge Hjelmdal, forstjóri DOGA í Noregi.
Fráfarandi eru Erling Jóhannesson, gullsmiður, Guðrún Sóley Gestsdóttir, fjölmiðlakona og Eva María Árnadóttir, fatahönnuður og fulltrúi Listaháskóla Íslands.
Ýr Þrastardóttir, fatahönnuður tekur sæti í úthlutunarnefnd hönnunarlauna en Emilía Borgþórsdóttir, vöruhönnuður hættir. Aðrir í stjórn eru Ragnar Frank Kristjánsson, landslagsarkitekt og Auður Gná Ingvarsdóttir, vöruhönnuður.
Þá var Kristín Eva Ólafsdóttir, grafískur hönnuður kjörinn nýr fulltrúi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs í úthlutunarnefnd menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar.
Fráfarandi stjórnarmönnum og fulltrúum voru færðar kærar þakkir fyrir vel unnin störf.









