Reykjavíkurborg auglýsir eftir hönnunarteymum til að móta göngugötur
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/167cf79e-bb73-45df-86ee-95bfda75cd55_Go%CC%88ngugo%CC%88tur+.jpg?auto=compress,format&rect=0,0,1120,745&w=1620&h=1078)
Vilt þú móta göngugötur? Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir þverfaglegum og skapandi teymum til að taka þátt í mótun göngugötuhluta Laugavegar, Vegamótastígs og Skólavörðustígs með þarfir notenda og rekstraraðila í fyrirrúmi. Umsóknarfrestur til 11. nóvember.
Verkið verður unnið í samstarfi við samæmingarhönnuð verkefnisins 9 skref.
Þrír hönnunarhópar verða valdir til samstarfs en í umsóknarferli boðar Reykjavíkurborg til viðtala. Óskað er eftir að hvert teymi samanstandi af þremur einstaklingum frá mismunandi starfsstéttum. Listinn er ekki tæmandi en í hópnum gæti verið arkitekt, innanhússarkitekt, landslagsarkitekt, iðnhönnuður, upplifunarhönnuður, grafískur hönnuður, myndlistarmaður eða mannfræðingur.
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/58debbb8-da8b-40f7-aef7-5fb5e3927b31_Go%CC%88ngugo%CC%88tur+2.png?auto=compress,format)
Verkefnið felst í að hanna göturýmið með fjölþætt notagildi þess í huga í samstarfi við hagsmunaaðila. Lögð er áhersla á að staðarandi og leikgleði fái að njóta sín. Hugað verður sérstaklega að lausnum er varða aðgengi allra, gróðurvæðingu, útfærslu götugagna og lýsingu. Forhönnun og viðamikil greiningarvinna liggur fyrir.
TÍMARAMMI VERKEFNIS:
Skil umsókna: 11. nóvember 2020
Tilkynning um val á teymum: 23. nóvember 2020
Verkefni hefst: 7. janúar 2021
Áætluð verklok verkefnis: 1. maí 2021