Samfélag í bleyti á Taste of Iceland í New York

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs tekur þátt í Taste of Iceland í New York í október með viðburðinum The Radical Act of Bathing Together. Þar verður íslensk baðmenning sett í alþjóðlegt samhengi og sjónum beint að því hvernig vatn, arkitektúr og sameiginlegir siðir geta skapað rými fyrir samveru, tengsl og að tilheyra samfélagi. Viðburðurinn fer fram í Scandinavia House föstudaginn 2. október.
Viðburðurinn byggir á framlagi Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr árið 2027, SOAK: Rituals of Collective Belonging - Samfélag í bleyti. Í New York verða þessar hugmyndir settar í samtal við baðhefðir víðs vegar að úr heiminum og menningu sameiginlegra rýma í borginni.
Samfélag í bleyti veltir upp spurningum um samfélagslegt hlutverk arkitektúrs. Sýningin teflir fram íslenskum baðstöðum sem mikilvægum innviðum og mótvægi við félagslegri einangrun í samtímanum.
Marcos Zotes, arkitekt, meðeigandi Basalt arkitekta og sýningarstjóri SOAK, kynnir verkefnið og íslenska baðmenningu og fjallar um hvernig arkitektúr getur skapað skilyrði fyrir samveru og mannleg tengsl.
Með honum taka þátt Christie Pearson, arkitekt, listamaður og höfundur bókarinnar The Architecture of Bathing, sem skoðar sameiginlega baðmenningu þvert á menningarheima, sögu og landslag, Miodrag Mitrašinović, arkitekt, borgarfræðingur, höfundur og prófessor í arkitektúr og borgarfræðum við Parsons School of Design, Allyson McDavid dósent í sjónrænni menningu og efnisheimum fornaldar við Parsons School of Design og Kristín Eva Ólafsdóttir, grafískur hönnuður og framkvæmdastjóri Gagarín.
Að loknum erindum taka þau þátt í pallborðsumræðum undir stjórn Andra Snæs Magnasonar rithöfundar.
SOAK: Rituals of Collective Belonging - Samfélag í bleyti verður framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr árið 2027. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs hefur umsjón með íslenska skálanum fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
SOAK: The Radical Act of Bathing Together
Föstudaginn 2. október 2026
Scandinavia House, Volvo Hall, New York
Viðburðurinn er hluti af Taste of Iceland í New York, er ókeypis og öllum opinn en skráning er nauðsynleg.
Nánari upplýsingar og skráning á vef Taste of Iceland.



