Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

HAKK Gallery opnar samsýninguna Snaga

24. febrúar 2025

HAKK Gallery opnar samsýninguna Snaga þann 28. febrúar næstkomandi kl 17:00, þar sem 30 hönnuðir, listamenn, handverksfólk og arkitektar sýna veggsnaga í sinni fjölbreyttustu mynd, efni og formi.

Þátttakendur eru bæði innlendir og erlendir, með margs konar bakgrunn og reynslu, nýútskrifaðir sem og landskunnir. Inntak sýningarinnar er einfalt en um leið flókið í einfaldleika sínum: Hvað er snagi?

Sýningin er afturlit til sambærilegrar sýningar sem haldin var í Gallerí Greip á Listahátíð 1996. Nokkrir þátttakenda þeirrar sýningar taka nú þátt aftur, tæpum 30 árum síðar. Sýningin á Listahátíð bar vel með sér tíðarandann í lok síðustu aldar en nú er tími kominn til að líta aftur, rýna í þær miklu breytingar sem orðið hafa á samfélaginu um leið og horft er fram á veg.

HAKK Gallery hlaut styrk úr Hönnunarsjóði Íslands haustið 2024. Handverk og Hönnun eru sérstakir samstarfsaðilar að sýningunni.

Þátttakendur/participants: Tinna Gunnarsdóttir,Studio Granda, Sigríður Sigurjónsdóttir, Pétur Örn Friðriksson, Þór Sigurþórsson ,Tobia Zambotti, Theodóra Alfreðsdóttir, And Anti Matter, Logi Pedro, Hanna Dís Whitehead, Johanna Seelemann, Björn Blumenstein, Salóme Hollanders, Hulda Katarína Sveinsdóttir, Of a space, Thomas Pauz, Katrín Ólína , Andreas Vange, Knowing the ropes, Theresa Himmer, Hugdetta, Sigurrós Björnsdóttir, Guðný Rúnarsdóttir, Ólöf Erla Bjarnadóttir, David Taylor, Åsa Lockner, Helgi Gíslason, Ryan Sullivan & Oliver Devany, Kris & Valdi, Atelier Fig, Halldór Úlfarsson & Kamilla Henriau, Ragnheiður Gestsdóttir.

Nánar um HAKK Gallery;

HAKK Gallery spratt upp úr samtali Gunnars Péturssonar myndlistamanns, eiganda SKEKK – sýningarstýrðrar hönnunarverslunar, og Brynhildar Pálsdóttur vöruhönnuðar, um stöðu og framtíð íslensksrar hönnunar- og handverkssamfélags. HAKK gallery er þverfaglegur vettvangur íslenskrar hönnunar og er ætlað að skapa frjóan jarðveg fyrir innlent handverk og smáframleiðslu. HAKK heldur nokkrar sýningar á ári þar sem hver og ein sýning hefur skýra stefnu, áherslu á efni, aðferð og hugmyndafræði.

HAKK Gallery Instagram

Viðburður á Facebook
Snagi / Tinna Gunnarsdóttir
Snagi / David Taylor
Snagi / Hanna Dís Whitehead
Snagi / Studio Granda

Tengt efni

  • Saman HönnunarMarkaður - Opið fyrir umsóknir um þátttöku til og með 28. febrúar.

  • Taktu þátt í DesignMatch kaupstefnunni á HönnunarMars 2025

  • Farmers Market á DesignTalks

Dagsetning
24. febrúar 2025
Höfundur
Guðrún Edda Einarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200