Teun Zwets færir litríkan hönnunarheim sinn á svið DesignTalks

Hollenski hönnuðurinn Teun Zwets er annar fyrirlesarinn sem tilkynntur er á DesignTalks 2027. Zwets er þekktur fyrir litríka og óhefðbundna húsgagnahönnun þar sem sköpunargleði, húmor og óvæntar lausnir fá að njóta sín.
Zwets útskrifaðist frá Design Academy Eindhoven árið 2020 og hefur síðan vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á hönnun. Hann vinnur án fyrirfram ákveðinnar áætlunar og leyfir efniviðnum, tilraunum og sköpunarferlinu sjálfu að leiða sig áfram. Útkoman eru húsgögn og hlutir þar sem hrá áferð mætir fágaðri útfærslu, sterkir litir fá að njóta sín og ófullkomleikinn verður að styrkleika.
Árið 2023 hannaði hann fyrsta stólinn í Splitted-línunni úr handklofnum viði en línan hefur síðan þróast í fjölbreytt safn húsgagna. Zwets hefur meðal annars hannað fyrir Pols Potten, HKliving og Ikonic og verk hans hafa verið sýnd víða um heim, meðal annars í Mílanó, Tókýó og Hangzhou í Kína.
Teun Zwets stígur á svið DesignTalks í Hörpu þann 7. apríl 2027!
Forsalan á DesignTalks er farin af stað - tryggðu þér miða á tix.is.
Forsala: 19.900 ISK
Fullt verð: 23.900 ISK
Listrænt teymi dagskrá DesignTalks skipa Sigurður Oddsson, hönnunarstjóri Aton, Nils Wiberg, hönnuður gagnvirkni og meðeigandi Gagarín, Magnea Þ. Guðmundsdóttir, arkitekt og stofnandi og eigandi teiknistofunnar STIKU, Jón Helgi Hólmgeirsson, vöruhönnuður, tónlistarmaður og fagstjóri MA Design and New Environments við Listaháskóla Íslands og Anna Clausen, stílisti og listrænn stjórnandi.
Þemað í ár er INNSÝN
Þema HönnunarMars 2027 er INNSÝN og verður sjónum beint að því sem liggur að baki sköpuninni. Hugmyndum, rannsóknum, tilraunum og þeim fjölbreyttu ferlum sem leiða til nýrra lausna. Á DesignTalks verður kafað ofan í heim hönnunar og arkitektúrs, ólíkar nálganir og hugmyndir sem ögra viðteknum hugmyndum og opna nýjar dyr.
DesignTalks hefur fest sig í sessi sem einn af lykilviðburðum HönnunarMars og mikilvægur vettvangur innblásturs, samtals og nýrra hugmynda. Ráðstefnan hefur farið fram fyrir fullu húsi undanfarin ár og boðið gestum einstakt tækifæri til að skyggnast inn í hugarheim og sköpunarferli fólks sem mótar samtímann og framtíðina með verkum sínum.
Viðburðurinn fer fram á ensku.






