Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

The Radical Act of Bathing together á Taste of Iceland í New York

6. október 2026
Ljósmyndari: Sigurður Pétur 
Ljósmyndari: Sigurður Pétur

Vel var mætt á viðburðinn The Radical Act of Bathing Together sem Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stóð fyrir í Scandinavia House í New York föstudaginn 2. október. Viðburðurinn var hluti af hátíðinni Taste of Iceland sem haldinn er af Íslandsstofu og Inspired by Iceland, og beindi sjónum að baðmenningu, samfélagslegu hlutverki arkitektúrs og opinberum rýmum.

Viðburðurinn var hluti af kynningu á Íslenska skálanum og sýningunni SOAK: Rituals of Collective Belonging - samfélag í bleyti, framlagi Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr árið 2027.

Í fyrirlestrum og pallborðsumræðum var íslensk baðmenning og félagsleg hlið hennar sett í alþjóðlegt samhengi. Svanhildur Hólm Valsdóttir sendiherra Íslands í Washington, opnaði viðburðinn og fundarstjórn var í höndum Höllu Helgadóttur, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Fyrirlesarar voru Marcos Zotes, arkitekt, meðeigandi Basalt arkitekta og sýningarstjóri íslenska skálans og Christie Pearson, arkitekt, listamaður og höfundur bókarinnar The Architecture of Bathing. Að loknum erindum voru pallborðsumræður sem Andri Snær Magnason, rithöfundur, stýrði en í þeim tóku þátt ásamt Marcos og Christie, Miodrag Mitrašinović, arkitekt, borgarfræðingur, höfundur og prófessor í arkitektúr og borgarfræðum við Parsons School of Design, Allyson McDavid dósent í sjónrænni menningu og efnisheimum fornaldar við Parsons School of Design og Kristín Eva Ólafsdóttir, grafískur hönnuður og framkvæmdastjóri Gagarín.

Mikilll áhugi var á viðburðinum og komu gestir víðsvegar að.

Með þátttökunni í Taste of Iceland gafst tækifæri til að kynna hugmyndir SOAK fyrir gestum í New York og opna samtal um vatn sem félagslegt rými.

Ljósmynd: Sigurður Pétur 
Svanhildur Hólm Valsdóttir sendiherra Íslands í Washington. Ljósmynd: Sigurður Pétur
Ljósmyndari er Sigurður Pétur 
Marcos Zotes, sýningarstjóri íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum 2027. Ljósmynd: Sigurður Pétur
Ljósmyndari er Sigurður Pétur 
Christie Pearson arkitekt, listamaður og höfundur bókarinnar The Architecture of Bathing Ljósmynd: Sigurður Pétur
Ljósmyndari er Sigurður Pétur 
Vel var mætt á viðburðinn sem haldinn var í Scandinavia House í New York. Ljósmynd: Sigurður Pétur
Ljósmyndari er Sigurður Pétur 
Ljósmynd: Sigurður Pétur
Ljósmyndari er Sigurður Pétur 
Andri Snær Magnason, Marcos Zotes og Christie Pearson. Ljósmynd: Sigurður Pétur
Ljósmyndari er Sigurður Pétur 
Kristín Eva Ólafsdóttir, Allyson McDavid og Miodrag Mitrašinović. Ljósmynd: Sigurður Pétur

Tengt efni

  • Íslensk hönnun setur svip sinn á borgina

  • Samfélag í bleyti á Taste of Iceland í New York

  • HönnunarÞing 2026: Þar sem hönnun, nýsköpun og orka mætast á Húsavík

Dagsetning
6. október 2026
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • Feneyjatvíæringur
  • Feneyjartvíæringur
  • SOAK

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200