Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Vel heppnaður hittingur þátttakenda HönnunarMars 2026

3. mars 2026

Þriðjudaginn 17. febrúar fór fram vel heppnaður hittingur þátttakenda HönnunarMars í Fantasíu, þar sem hönnuðir komu saman til að tengjast, skála og stilla saman strengi fyrir hátíðina framundan.

Boðið var upp á léttar veitingar og skálað fyrir hátíðinni sem framundan er, en jafnframt var farið yfir helstu praktísku atriði og mikilvægar dagsetningar tengdar framkvæmd hátíðarinnar. Þátttakendur fengu tækifæri til að bera upp spurningar, deila hugmyndum og tengjast öðrum. Andrúmsloftið einkenndist af jákvæðni og tilhlökkun fyrir því sem koma skal. 

Strik Studio kynnti einkenni hátíðarinnar og gaf gestum innsýn í sérhannað forrit sem mun auðvelda þátttakendum að útbúa efni fyrir sýningar og viðburði. Forritið er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Þar geta þátttakendur hlaðið upp eigin myndefni og og búið til sjálfvirka hreyfigrafík sem endurspeglar þema hátíðarinnar, Tengingar, til dreifingar á sínum miðlum. 

Einnig fengum við góða heimsókn frá Cathrine “Cat” Frederiksen frá Digido Marketing, sem deildi hagnýtum og skapandi ráðum um hvernig megi nýta samfélagsmiðla til að segja frá sýningum og viðburðum í aðdraganda hátíðarinnar. 

Við þökkum öllum sem mættu kærlega fyrir komuna.

Heimasíða HönnunarMars

Tengt efni

  • Hjalti Karlsson og Stefan Sagmeister á DesignTalks 2026

  • Kallað eftir nýjum röddum í íslensku hönnunarlífi fyrir FLEY samsýningu Félags vöru- og iðnhönnuða

  • Stórstjarnan Dorte Mandrup á DesignTalks

Dagsetning
3. mars 2026
Höfundur
Klara Rún Ragnarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • HönnunarMars
  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200