Viltu fylgjast með því sem er að gerast hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs?

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs kynnir nú til leiks nýjung sem ætti að auðvelda hönnuðum, arkitektum og öðrum áhugasömum að halda utan um það sem framundan er. Nú getur þú gerst áskrifandi að viðburðadagatali Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og fengið mikilvægar dagsetningar beint inn í dagatalið í símanum eða tölvunni.
Í dagatalið munum við skrá helstu viðburði, umsóknarfresti og aðrar mikilvægar dagsetningar sem tengjast stórum verkefnum, svo sem HönnunarMars, Hönnunarsjóði Íslands, Hönnunarverðlaunum Íslands, Tölum um fyrirlestraröðina og öðru sem áhugavert er að fylgjast með.
Nú þarf ekki lengur að muna eftir að skrá allar dagsetningar – við gerum það fyrir þig.
Smelltu hér til að gerast áskrifandi að dagatalinu í símanum
Smelltu hér til að gerast áskrifandi að dagatalinu í vafra í tölvunni
Þegar þú hefur bætt dagatalinu við birtast dagsetningarnar í þínu eigin dagatali og þegar við bætum við nýjum viðburðum eða mikilvægum dagsetningum uppfærist dagatalið hjá þér.
Hlökkum til að sjá þig á viðburðum Miðstöðvarinnar í vetur.


