Spennandi haust framundan hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Fjölmenni var á opnunarhófi haustsins hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrsi þar sem farið var yfir dagskrá vetrarins. Stórir viðburðir eins og Hönnunarverðlaunin og HönnunarMars verða á sínum stað í dagatalinu en einnig verður bryddað upp á nýjungum.
Sem dæmi verða opnir fundir í Grósku með reglulegu millibili í vetur um áhugaverð málefni sem snúa að hönnun og arkitektúr. Að auki er verkefnið Tölum um arkitektúr væntanlegt, þar sem rætt er við arkitekta um uppáhalds byggingar og staði. Eins verður Hönnuður í fókus á miðlum Miðstöðvarinnar í vetur en Thelma Rún Gunnarsdóttir var sá fyrsti í byrjun september.









Stóru verkefnin í vetur
Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs fór yfir starfsemina og dagskrána framundan á opnunarhófi haustsins. Anton Illugason, formaður stjórnar HönnunarMars og Helga Ólafsdóttir stjórnandi hátíðarinnar töluðu um hátíðina, sem nýlega var útnefnd varanleg borgarhátíð í Reykjavík ásamt Airwaves. Borghildur Sölvey Sturludóttir, stjórnarformaður Hönnunarsjóðs ræddi um sjóðinn og Eva María Árnadóttir, sviðsstjóri samfélags og sjálfbærni hjá Listaháskóla Íslands fjallaði um Hönnunarverðlaunin sem fara fram 6. nóvember nk. í Grósku.








Opinn fundur um gervigreind í september
Fyrsti opni fundur vetrarins er 24. september nk. klukkan 9 stundvíslega í Grósku þar sem við fjöllum um gervigreind og hvernig hönnuðir og arkitektar nýta sér tæknina. Fjórir hönnuðir og arkitektar flytja snörp erindi um hvernig þau nota gervigreindartæknina, þau Daniel Zarem, vöruhönnuður Össur, Kristján Örn Kjartansson, arkitekt KRADS, María Guðjohnsen, þrívíddarhönnuður, Sigurður Oddsson, grafískur hönnuður Aton og Safa Jemai, framkvæmdastjóri Víkonnekt. Umræðustjóri: Bergur Finnbogason, listrænn stjórnandi CCP. Við biðjum fólk vinsamlegast að skrá sig á viðburðinn hér. Viðburðurinn er öllum opinn og ókeypis inn.
Vertu með okkur
Dagskráin í vetur er þétt og spennandi og við hvetjum hönnuði, arkitekta og áhugafólk um málefnin til að taka virkan þátt í dagskránni. Hægt er að fylgja okkur á Instagram og Facebook, ásamt því að við sendum fréttabréf út með helstu tíðindum í byrjun hvers mánaðar en neðst á heimasíðunni okkar er hægt að skrá sig á póstlistann okkar.