Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast.

Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.

Verðlaunin eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi ný verk; einstakan hlut, verkefni eða safn verka. Hönnuðir þurfa að vera félagar í einu af aðildarfélögum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs eða fagmenn á sínu sviði til að hljóta verðlaunin. Ný verk eru verk sem lokið hefur verið við á síðustu tveim til þremur árum fyrir afhendingu verðlaunanna.

Hönnunarverðlaun Íslands eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 krónur.

Besta fjárfesting í hönnun er viðurkenning sem veitt er fyrirtækjum sem hafa hönnun og arkitekúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina. 

Við val á verðlaunahafa er haft í huga að verið er að leita að framúrskarandi verki, eða safni verka, sem standa á sem fulltrúi þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. Verkið/verkin þurfa að vera einstök, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu og fagmennsku í vinnubrögðum.

Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands voru veitt í fyrsta skiptið árið 2019.  Heiðursverðlaun er viðurkenning veitt einstaklingi sem þykir hafa skilað framúrskarandi ævistarfi á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi. Fyrsti handhafi heiðursverðlauna var Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt.

Dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2021:    
Sigríður Sigurjónsdóttir formaður, Hönnunarsafn Íslands          
Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, LHÍ          
Þorleifur Gíslason, grafískur hönnuður MH&A            
Margrét Kristín Sigurðardóttir, SI  
Ragna Fróðadóttir, MH&A   
Katarina Siltavuori, framkvæmdastjóri Archinfo í Finnlandi 

Varamenn dómnefndar:

Gísli Arnarson, grafískur hönnuður. Skipaður af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.
Guðmundur Jörundsson, fatahönnuður. Skipaður af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.
Massimo Santanicchia, arkitekt. Skipaður af Listaháskóla Íslands.
María Kristín Jónsdóttir, vöruhönnuður. Skipuð af Hönnunarsafni Íslands.

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn ÍslandsListaháskóla ÍslandsÍslandsstofu og Samtök iðnaðarins.

Handhafar Hönnunarverðlauna Íslands gegnum árin

Tengt efni

Samstarfs- og stuðningsaðilar

  • Íslandsstofa
  • Samtök Iðnaðarins
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • Listaháskóli Íslands
  • Hönnunarsafn Íslands