Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hönnunarverðlaun Íslands veitt í þrettánda sinn

5. nóvember 2026

Hönnunarverðlaun Íslands 2026 voru veitt við hátíðlega athöfn í Grósku þann 5. nóvember.  Björgunarbáturinn Leiftur er vara ársins, Frakkastígur 1 er staður ársins og Sketching Bathing in Iceland verk ársins. Þá hlaut Eyjólfur Pálsson, húsgagna- og innanhússhönnuður og stofnandi EPAL, Heiðursverðlaun og Aurora velgjörðarsjóður viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.

Dagurinn hófst með kynningum á þeim níu fjölbreyttu og framúrskarandi verkefnum sem hlutu tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands í ár í þremur flokkum. Gestir fengu tækifæri til að kynnast verkefnunum og fólkinu á bak við þau áður en komið var að hátíðlegri verðlaunaafhendingu sem lauk með fögnuði og skál. Takk fyrir komuna öll sömul og innilega til hamingju allir verðlaunahafar og tilnefndir!

Leiftur vara ársins

Leiftur hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2026 í flokknum VARA fyrir hönnun sem sameinar tæknilega yfirburði, auðþekkjanlegt form og áþreifanleg samfélagsleg áhrif. Í Leiftri snýr hönnunin ekki einvörðungu að formi og virkni bátsins heldur skapar hún lausn sem hefur breytt möguleikanum á því að vinna við erfiðar aðstæður á sjó. Leiftur sýnir með afgerandi hætti hvernig íslensk hönnun getur náð árangri á alþjóðavettvangi og um leið átt þátt í að bjarga mannslífum.

Leiftur

Meira hér

Frakkastígur 1 staður ársins

Frakkastígur 1 hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2026 í flokknum STAÐUR fyrir að sýna á framsækinn hátt hvernig hringrásarhugsun getur verið raunhæfur hluti af hefðbundnu byggingarferli. Með einstökum arkitektúr og hönnunarhugsun sýnir verkefnið hvernig takmarkanir í efnisvali geta ýtt undir skapandi drifkraft sem í tilfelli Frakkastígs 1 gefur byggingunni á endanum karakter en ekki síður fagurfræðilegt og menningarlegt gildi.

Frakkastígur 1

Meira hér

Sketching Bathing in Iceland verk ársins

Sketching Bathing in Iceland hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2026 í flokknum VERK fyrir heildstætt verk sem kafar ofan í sögu og menningu íslenskrar baðhefðar. Verkið endurspeglar djúpan skilning á sundlauginni sem félagslegu rými í daglegu lífi Íslendinga og sem óformlegum samastað fyrir spjall, slúður og tengsl þvert á kynslóðir og gerir þá menningu um leið skiljanlega fyrir þá sem ekki þekkja hana. Hér er á ferðinni einstök teiknuð vettvangsferð sem gefur heillandi innsýn í sérkenni, húmor og sjálfsmynd þjóðarinnar.

Sketching bathing in Iceland

Meira hér

Eyjólfur Pálsson húsgagna- og innanhússhönnuður og stofnandi EPAL Heiðursverðlaunahafi

Eyjólfur Pálsson, húsgagna- og innanhússhönnuður og stofnandi EPAL, hlýtur heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands 2026 fyrir einstakt framlag sitt til íslenskrar hönnunar. Í meira en hálfa öld hefur Eyjólfur verið ötull talsmaður hönnunar og lagt ríka áherslu á að auka veg hennar og virðingu í íslensku samfélagi. Með ástríðu, frumkvæði og eldmóði hefur hann skapað íslenskri hönnun mikilvægan vettvang og stuðlað að því að koma verkum íslenskra hönnuða á framfæri, jafnt hér heima sem erlendis.

Eyjólfur Pálsson heiðursverðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands

Meira hér

Aurora velgjörðarsjóður verðlaunuð fyrir bestu fjárfestingu í hönnun

Aurora velgerðarsjóður hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands 2026 fyrir hönnunar- og þróunarverkefnið Sweet Salone. Sweet Salone stuðlar að félagslegum og efnahagslegum breytingum með því að koma á samstarfi íslenskra hönnuða og handverksfólks í Sierra Leone.

Aurora velgjörðasjóður hlaut viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun

Meira hér

Dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands er skipuð sjö fagmönnum úr hópi hönnuða og arkitekta, þremur skipuðum af stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, einum skipuðum frá Hönnunarsafni, sem jafnframt er formaður, einum fulltrúa frá Listaháskóla Íslands, einum utanaðkomandi og einum erlendum fulltrúa.

Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk. Dómnefnd tilnefnir þrjú verkefni í hverjum flokki og af þeim hlýtur einn sigurvegari í hverjum flokki Hönnunarverðlaun Íslands sem eru hvoru tveggja heiðurs- og peningaverðlaun.

Dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2026 skipa:

  • Þórunn Árnadóttir, formaður dómnefndar og vöruhönnuður, Hönnunarsafn Íslands
  • Bergur Finnbogason, listrænn stjórnandi CCP
  • Endre Berentze, hönnuður, meðstofnandi og stjórnandi hjá Surfs
  • Helga Valdís Árnadóttir, grafískur hönnuður og listrænn stjórnandi hjá Brandenburg
  • Ragna Sigríður Bjarnadóttir, fatahönnuður og fagstjóri við Listaháskóla Íslands
  • Sigurlína Margrét Osuala, keramíker
  • Tor Inge Hjelmdal, arkitekt og framkvæmdastjóri DOGA

Það voru þau Eygló Margrét Lárusdóttir, fatahönnuður, og Pétur Geir Magnússon, grafískur hönnuður og listamaður, sem stýrðu samtali við tilnefnda af sinni stakri list og sáu um að kynna verðlaunaafhendinguna sem fór fram fyrir stútfullum sal. 

Andrea Margrétardóttir, fatahönnuður, sá um listræna stjórnun og upplifun. Arna Engilbertsdóttir og Grugg og Makk sáu um matarupplifun og Grugg og Makk sá einnig um drykki.

Upptökur og klippingu myndbanda annaðist Arnar Tómasson hjá Eldey Films, en Arnar Fells sá einnig um klippingu og um grafíska framsetningu byggða á einkenni Hönnunarverðlaunanna eftir Elsu Jónsdóttur og Björn Loka hjá Krot og Krass, í samvinnu við Kristínu Maríu Sigþórsdóttur.

Ljósmyndari viðburðarins var Eygló Gísladóttir.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Íslandsstofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa Lóninu. 

Tengt efni

  • Sketching Bathing in Iceland er Verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands

  • Frakkastígur 1 er Staður ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2026

  • Leiftur er Vara ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2026

Dagsetning
5. nóvember 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Greinar
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200