
Hvernig er best að HönnunarMars- era? HönnunarMars 2023
Nú er HönnunarMars að hefjast en frá 3. - 7. maí mun borgin iða af lífi með fjölda sýninga og viðburða sem fara fram um allt höfuðborgarsvæðið - Skapandi kraftar, innblástur, fegurð og fögnuður eru allsráðandi. Allt frá arkitektúr, grafískri hönnun, fatahönnun, stafrænni hönnun, vöruhönnun og allt þar á milli. Hér er allt sem þú þarft að vita til að njóta hátíðarinnar til hins ítrasta.
1. maí 2023

Leiðsögn um Eddu-Hús íslenskunnar á HönnunarMars
Hornsteinar arkitektar í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og Eddu - hús íslenskunnar bjóða skipulagða leiðsögn um húsið á HönnunarMars í ár. Ögmundur Skarphéðinsson og Ólafur Hersisson arkitektar hjá Hornsteinum arkitektum leiða göngurnar sem fara fram laugardaginn 6. maí. Fullbókað er á leiðsögnina.
29. apríl 2023

Sumarstarf fyrir arkitektanema
Markaðsstofa Reykjaness leitar að teymi tveggja nemenda til að kortleggja útilistaverk og áhugaverðan arkitektúr á Reykjanesi. Teymið þarf að vera skipað annars vegar nemenda í arkitektúr og hins vegar listum, hönnun eða menningarmiðlun. Um er að ræða verkefni sem stendur yfir í tvo mánuði á tímabilinu júní-ágúst 2023.
28. apríl 2023

HönnunarMars fyrir áhugafólk um tísku
HönnunarMars er rétt handan við hornið en hátíðin fer fram dagana 3. til 7. maí nk. og breiðir úr sér um alla borg. Rúmlega 100 sýningar og 120 viðburðir eru á dagskrá í ár og því ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi.
28. apríl 2023

HönnunarMars fyrir framtíðina
25. apríl 2023

HönnunarMars fyrir vellíðan
25. apríl 2023

HönnunarMars fyrir áhugafólk um arkitektúr
28. apríl 2023

HönnunarMars fyrir umhverfið
24. apríl 2023
35.000 íbúðir á 10 árum: Hvernig er best að gera þetta?
Á HönnunarMars í ár ætlar Arkitektafélag Íslands, í samstarfi við Grænni byggð og Húsnæðis og mannvirkjastofnun (HMS) að standa fyrir málstofu þar sem gæði, umhverfið og samfélag er sett í fyrsta sæti.
3. maí 2023

HönnunarMars fyrir fjölskylduna
Á HönnunarMars 2023 er fjöldin allur af viðburðum sem henta fjölskyldum og börnum. Hér eru nokkrir þeirra.
24. apríl 2023

DesignTalks 2023 - Kjartan Örn Ólafsson
Kjartan Örn Ólafsson, loftslagsfrumkvöðull, kemur fram á DesignTalks 2023 í Hörpu miðvikudaginn 3. maí.
24. apríl 2023

HönnunarMars fyrir mataráhugafólk
HönnunarMars er rétt handan við hornið en hátíðin fer fram dagana 3. til 7. maí nk. og breiðir úr sér um alla borg. Rúmlega 100 sýningar og 120 viðburðir eru á dagskrá í ár og því ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér eru nokkrir viðburður sem henta sérstaklega vel fyrir fólk sem hefur áhuga á mat, matargerð og gúrmei.
22. apríl 2023

DesignTalks 2023 - Refik Anadol, listamaður, leikstjóri og brautryðjandi í fagurfræði gervigreindar
Refik Anadol, listamaður, leikstjóri og brautryðjandi í fagurfræði gervigreindar, kemur fram á DesignTalks 2023 í Hörpu miðvikudaginn 3. maí.
22. apríl 2023

DesignTalks 2023 - Sigurður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri brand, hönnunar- og nýsköpunarsviðs Bláa lónsins. Meðeigandi í Design Group Italia
Sigurður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri brand, hönnunar- og nýsköpunarsviðs Bláa lónsins og meðeigandi í Design Group Italia, kemur fram á DesignTalks 2023 í Hörpu miðvikudaginn 3. maí. DesignTalks ráðstefnan hefur öðlast fastan sess hérlendis og er vel þekkt alþjóðlega sem mikilvægur vettvangur innblásturs og samtals um helstu þróun og breytingar sem drifnar eru áfram með aðferðum hönnunar og arkitektúrs.
22. apríl 2023

Hlaupið um arkitektúr á HönnunarMars
Upplifðu Reykjavíkurborg á nýjan hátt í viðburði Arkitektafélags Íslands með örlítið örari hjartslátt en vanalega. Arkitektafélag Íslands býður nú í annað sinn upp á hlaupaviðburð á HönnunarMars. Hlaupið verður laugardaginn 6. maí og sunnudaginn 7. maí og hefst hlaupið kl. 11.00.
21. apríl 2023

Vinnustofa fyrir áhugasama um hönnun og efnivið; marmara
21. apríl 2023

Málstofa og kynning á Kennaraskólahúsinu við Stakkahlíð
Fimmtudaginn 27. apríl kl. 16.30 verður haldin málstofa og kynning á kennaraskólahúsinu við Stakkahlíð sem tekið var í notkun fyrir rúmum 60 árum. Í kjölfarið verður skoðunarferð um húsið og léttar veitingar í Skála.
20. apríl 2023

Þrjár samkeppnir um sýningar í þjóðgörðum Íslands
Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarður í samvinnu við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og Ríkiskaup efna til þriggja samkeppna um sýningar í þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi, gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri og gestastofu Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs á Skútustöðum við Mývatn.
18. apríl 2023

HönnunarMars fyrir upplifun og innblástur
18. apríl 2023

Kossmanndejong vinnur samkeppni um sýningu í Náttúruminjasafni Íslands
Niðurstöður hafa verið birtar í hönnunarsamkeppni um sýningu Náttúruminjasafns Íslands í nýjum höfuðstöðum þess í Náttúruhúsi í Nesi. Hollenska sýningarfyrirtækið Kossmanndejong bar sigur úr býtum en alls sóttu tíu hönnunarteymi um þátttökurétt. Það var Náttúruminjasafn Íslands í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og Ríkiskaup sem stóð fyrir samkeppninni, sem var hönnunar- og framkvæmdarkeppni með forvali.
13. apríl 2023
