Félag íslenskra teiknara

Tilgangur Félags íslenskra teiknara er að gæta hagsmuna teiknara á sviði grafískrar hönnunar, auglýsinga- og myndskreytinga. Félaginu er ætlað að efla og styrkja atvinnugreinina með faglegri fræðslu, sýningum o.fl. Félagið veitir félagsmönnum sínum aðstoð við fagleg og lögfræðileg atriði og gætir réttinda félagsmanna sinna.
Hafa samband: almennt@teiknarar.is
Fylgstu með okkur á samfélagsmiðlum
Facebook
Instagram

Vitrum Iceland tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
Vitrum Iceland er verk eftir hönnuðinn Johönnu Seelemann sem spannar rannsóknir, tilraunir, hönnun, framleiðslu og sýningu. Johanna sameinar handverk og iðnað og skapar framúrskarandi lausnir, ferla og gripi úr endurunnu gleri. Verkin, hliðarborð, vegglampar, vasar, hillur og stóll, voru sýnd í H,A,K,K galleríi. Vitrum Iceland er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum verk.
21. október 2026

Sketching Bathing in Iceland tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
Sketching Bathing in Iceland er verk sem fjallar um sundlaugarmenningu Íslendinga eftir Rán Flygenring. Verkið var gefið út í samnefndri bók og birtist í sýningu og baðteiknismiðjum í þremur sundlaugum í Reykjavík. Sketching Bathing in Iceland er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum verk.
21. október 2026

¡Hola! tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
¡Hola! er herferð malbikunarfyrirtækisins Colas um ástand vega á Íslandi sem unnin var af auglýsingastofunni Pipar\TBWA. ¡Hola! herferðin er tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum verk.
21. október 2026

Fatahönnun og veðurdrifinn arkitektúr hljóta hæstu styrki Hönnunarsjóðs
Þróun og markaðssetning nýrra fatalína og verkefnið Veðurdrifinn arkitektúr 2.0 hlutu hæstu styrki í seinni úthlutun ársins úr Hönnunarsjóði. Úthlutunin fór fram í Grósku fimmtudaginn 15. október. Alls var 37 milljónum króna úthlutað til 21 verkefnis á sviði hönnunar og arkitektúrs og veittir voru 17 ferðastyrkir.
16. október 2026

Sköpunargleðin tekur völdin á öðrum fyrirlestri vetrarins
Á tímum þegar vindar blása úr öllum áttum beinum við sjónum að sköpunargleðinni, forvitninni og kraftinum sem býr í hönnun og arkitektúr.
Næsti fyrirlestur Tölum um hönnun og arkitektúr fer fram í stóra sal Grósku næsta miðvikudag, 21. október, kl. 9:00-10:00. Húsið opnar að vanda kl. 8:30 með rjúkandi heitum bolla og bakkelsi.
15. október 2026

Virkilega vel heppnuð hátíð AGI Open: Nafli alheims um sinn
Nú er nýafstaðin veisla á sviði grafískrar hönnunar og miðlunar þegar AGI Open var haldin í Reykjavík þann 1. og 2. október s.l. Þar stigu á stokk á fimmta tug erlendra hönnuða, listrænna stjórnenda og listamanna í fremstu röð og fullt var út úr dyrum bæði á fyrirlestra deginum í Gamla bíó og blandaðri dagskrá í Grósku.
12. október 2026

Opið fyrir innsendingar: Íslensku bókahönnunarverðlaunin 2026
29. september 2026

Blásum í HönnunarMars lúðurinn! Opnað fyrir snemmskráningu 2027
HönnunarMars er hátíð sköpunar, hugmynda og nýrrar sýnar. Þar mætast hönnuðir, arkitektar og fyrirtæki sem hugsa stórt, ögra viðteknum hugmyndum og feta nýjar slóðir. Hvað er að gerast? Er eitthvað að breytast? Hvað er að springa út?
22. september 2026

„Við eigum fullt erindi í þetta samtal“
„Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin augum þegar ég sá að allar þessar stórstjörnur úr hönnunar heiminum væru að koma hingað til Íslands,“ segir Rósa Hrund Kristjánsdóttir, sköpunarstjóri. Tilefnið er AGI Open, alþjóðleg hönnunarráðstefna sem fer fram í Reykjavík 1. og 2. október og leiðir saman einstakan hóp fólks sem hefur haft mótandi áhrif á grafíska hönnun og sjónræna menningu síðustu áratuga.
10. september 2026

Erum við að móta framtíðina eða bara að elta hana?
Christian Bason hefur um árabil unnið á mörkum hönnunar, stjórnunar og samfélagsbreytinga. Hann kemur til Íslands og heldur MasterClass á vegum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs í Grósku 16. september. Í viðtali við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs ræðir hann meðal annars námskeiðið þar sem hann býður stjórnendum og fagfólki í skapandi greinum, arkitektum, hönnuðum og öðrum sem eru að vinna í umhverfi sem er að breytast mjög hratt, upp á áhugaverða aðferðafræði sem er byggð á bókinni hans Expand.
9. september 2026

Stóra breytingin! Horft til framtíðar á fyrsta fyrirlestri vetrarins
Á fyrsta fyrirlestri vetrarins hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs beinum við sjónum að breytingum og framtíðinni. Hvaða breytingar eru í vændum og hvernig getum við undirbúið okkur sem best fyrir það sem tekur við?
8. september 2026

Við vitum hver greiddi fyrir flísalímið. En hver hannaði húsið?
Við megum svo sannarlega gleðjast þegar nýjar byggingar eru teknar í notkun, almenningsrými verða til eða ný hönnun lítur dagsins ljós og segja frá því. Sem betur fer eigum við framúrskarandi arkitekta og hönnuði hér á landi og því er mjög oft tilefni til að fagna nýju hugviti og sköpun.
8. september 2026

MasterClass með Christian Bason: Endurhugsum hvernig við sköpum verðmæti
Miðvikudaginn 16. september býður MH&A upp á MasterClass með Christian Bason í Grósku fyrir stjórnendur og fagfólk í skapandi greinum. Á námskeiðinu, sem byggir á aðferðarfræði bókar Christian, Expand, býður Christian stjórnendum og fagfólki í skapandi greinum, arkitektum, hönnuðum og öðrum sem vinna að breytingum, að ögra eigin hugmyndum og forsendum um hvernig og hvers vegna þau skapa verðmæti.
25. ágúst 2026

Heimsþekktir hönnuðir mæta til Reykjavíkur á AGI Open
Hönnunarheimurinn mætir til Reykjavíkur í haust þegar AGI Open fer fram dagana 1.–2. október. Yfir 30 hönnuðir hvaðanæva að úr heiminum eru staðfestir í dagskrána og fyrstu fimm nöfnin hafa nú verið kynnt til leiks. Sannkölluð vítamínsprauta fyrir íslenskt skapandi samfélag. Forsölu miða lýkur 16. ágúst.
13. ágúst 2026

Komdu á Hönnunartrúnó
Á HönnunarMars stóð Hvíta húsið fyrir Hönnunartrúnói á Gilligogg þar sem reynsluboltar úr heimi auglýsinga, hönnunar og samfélags ræddu um samspil auglýsingahönnunar og samfélagsbreytinga, tímamót sem hafa haft veruleg áhrif á lífshætti bæði atvinnulíf og samfélag.
16. júní 2026

Alþjóðlega hönnunarsenan í Reykjavík í haust - Forsala hafin
Hönnunarráðstefnan AGI Open verður haldin 1. og 2. október í Reykjavík. Þessa tvo daga munu ríflega 20 fyrirlesarar og enn fleiri þátttakendur fjalla um notendaupplifun, letur, mörkun, forritun, bókahönnun og handbragð - svo eitthvað sé nefnt. Miðasala hafin á tix.is
16. júní 2026

Tölum um hönnun og arkitektúr: Samtal um borgargæði með sérfræðingum og oddvitum í Reykjavík
Hvernig sköpum við borgargæði með arkitektúr og hönnun? Í aðdraganda kosninga þá beinum við sjónum að borgargæðum og hvernig beita má arkitektúr og hönnun með markvissum hætti við uppbyggingu borgarinnar til að skapa gæði og gott samfélag fyrir íbúa, börn og fullorðna. Þrír fyrirlesarar taka til máls og í framhaldi mæta forystumenn stjórnmálaflokkanna í Reykjavík í pallborðsumræður.
9. apríl 2026

Viltu taka þátt í að móta framtíð hönnunar og arkitektúrs á Íslandi?
Auglýst eftir framboðum frá öflugum fulltrúum fagfólks úr baklandi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs til setu í ólíkum stjórnum á vegum miðstöðvarinnar. Vinsamlegast athugið að einungis félagsmenn fagfélaga Miðstöðvarinnar geta boðið sig fram.
26. mars 2026

FÍT verðlaunin 2026 – Verðlaunahafar
Hlutverk FÍT verðlaunanna er að viðurkenna þau verk sem skara fram úr á Íslandi í grafískri hönnun og myndlýsingum ár hvert. Gull-, silfur- og aðalverðlaun voru veitt á verðlaunahátíðinni sem haldin var í Grósku í kvöld, föstudaginn 27. febrúar 2026.
27. febrúar 2026

Tilnefningar til FÍT verðlaunanna 2026
FÍT verðlaunin eru árleg fagverðlaun Félags íslenskra teiknara. Hlutverk þeirra er að veita því viðurkenningu sem skarar fram úr á Íslandi í grafískri hönnun og myndlýsingum ár hvert.
20. febrúar 2026