Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í fagfélög
    • English
    • Íslenska

Félag vöru-og iðnhönnuða

Félag vöru- og iðnhönnuða er fagfélag hönnuða á Íslandi. Hlutverk félagsins er að vera málsvari hönnuða, með virku samtali og opnu upplýsingaflæði. Auk þess að efla þekkingu á faginu og gæta hagsmuna félagsmanna. Félagið hefur það að leiðarljósi að stuðla að faglegum vinnubrögðum og eflingu hönnunar.

Skráðu þig í félagið

  • Fréttir
  • Félagið

Auður hugmynda – tölum um hönnun og arkitektúr 28. janúar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur fyrir opnum fyrirlestrum í vetur þar sem sjónum er beint að stöðu og framtíð hönnunar og arkitektúrs.
19. janúar 2026

Hönnunarsjóður: Opin kynningarfundur um gerð umsókna

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs heldur opinn kynningarfund fyrir umsækjendur um styrki Hönnunarsjóðs. Kynningarfundurinn verður rafrænn og fer fram föstudaginn 23. janúar frá kl. 12:00 - 13:00.
15. janúar 2026

Samfélag hönnuða og arkitekta í Grósku

Langar þig að starfa eða halda viðburð í suðupotti nýsköpunar og hönnunar á Íslandi? Gróska hugmyndahús er suðupottur nýsköpunar á Íslandi og öflugt umhverfi fyrir einstaklinga og fyrirtæki þar sem hugmyndir verða að veruleika innan um auðugt mannlíf og menningu.
15. janúar 2026

HönnunarMars mest sótta hátíðin

HönnunarMars er mest sótta hátíðin samkvæmt nýrri könnun Prósents en spurt var hvaða menningarhátíð fólk hefur sótt síðustu þrjú ár. Tíu prósent sóttu HönnunarMars, átta prósent sóttu Listahátíð í Reykjavík, sex prósent Iceland Airwaves og fimm prósent kvikmyndahátíðina RIFF.
14. janúar 2026

Árið 2025 kraftmikið og fjölbreytt

Árið 2025 sem senn líður  hefur verið kraftmikið og fjölbreytt í Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Hátíðir, verðlaun, úthlutanir, fyrirlestrar, erlend verkefni og ýmsir viðburðir setja sinn svip á síðustu misseri. Við höfum tekið saman brot af því besta á árinu sem er að líða; helstu áfanga og viðburði í starfsári Miðstöðvarinnar.
30. desember 2025

Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sendir hátíðarkveðjur og bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Við þökkum vinum, velunnurum, þátttakendum, gestum og öllu okkar góða og fjölbreytta samstarfsfólki, hönnuðum og arkitektum innilega fyrir gott og viðburðaríkt ár.
17. desember 2025

Gleðileg hönnunarjól! Veljum íslenska hönnun undir tréð

Er líða fer að jólum er ráð að huga að jólagjöfum sem gleðja okkar nánustu. Að því tilefni vekur Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sérstaka athygli á fjölbreytni, grósku og gæðum í íslenskri hönnun sem er fullkomin í jólapakkana!
3. desember 2025

Sýndu nýja vörulínu Dýpis í Toronto

G. Sigríður Ágústsdóttir og Árný Þórarinsdóttir stofnendur Dýpi eru nýkomnar frá Toronto þar sem þær kynntu vörurnar sínar á vegum Íslandsstofu á viðburðinum Taste of Iceland.
3. desember 2025

Samsýningin STJAKAR endurspeglar fjölbreyttar vinnuaðferðir hönnuða

STJAKAR, sem opnaði hjá HAKK Gallery um helgina, er ný samsýning þar sem hönnuðir, arkitektar, handverks- og myndlistafólk, bæði innlent og erlent hannar ákveðinn hlut með frjálsri aðferð og efnisnotkun.
2. desember 2025

Þessi jólaköttur étur einungis sætindi

Verslunin Rammagerðin hefur staðið fyrir þeirri skemmtilegu hefð síðan 2020 að fá hönnuði til að hanna sína eigin útgáfu af jólakettinum. Jólaköttur ársins er lentur en að þessu sinni var hönnunin í höndum mæðginanna Aldísar Einarsdóttur leirkerasmiðs og Davíðs Georgs Gunnarssonar arkitekts.
27. nóvember 2025

Bláa lónið bakhjarl Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Bláa Lónið og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs hafa undirritað samstarfssamning til þriggja ára. Bláa Lónið verður bakhjarl Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og mun einnig koma að ýmsum samstarfsviðburðum er tengjast nýsköpun og samfélagsverkefnum á næstu árum. Forsvarsmenn undirrituðu samninginn í húsakynnum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs í Grósku.
25. nóvember 2025

Opið fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð

Opið er fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð. Um er að ræða fyrri úthlutun ársins 2026 en umsóknarfrestur rennur út þann 5. febrúar 2026, kl. 14:00. Hægt er að sækja um þrjár tegundir styrkja auk ferðastyrkja.
25. nóvember 2025

Tölum um samkeppnir 19. nóvember - skila þær bestu niðurstöðunni?

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur fyrir opnum fyrirlestrum í vetur um áhugaverð málefni sem snúa að hönnun og arkitektúr. Næsti fyrirlestur verður 19. nóvember kl. 9 í Grósku þegar við tölum um samkeppnir og hvort þær skila bestu niðurstöðunni.
12. nóvember 2025

Hönnunarverðlaun Íslands veitt í tólfta skipti

Hönnunarverðlaun Íslands 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn í Grósku þann 6. nóvember.  Fjallahjólið Elja er vara ársins, Elliðaárstöð er staður ársins og Fischersund verk ársins. Þá hlaut Albína Thordarson arkitekt Heiðursverðlaun og Náttúruverndarstofnun viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.
6. nóvember 2025

Elliðaárstöð er Staður ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025

Elliðaárstöð er nýr áfangastaður með ólíkum rýmum og fjölbreytilegri upplifun í Elliðaárdal, hönnuð af Tertu þverfaglegu hönnunarteymi í samstarfi við Landslag.
6. nóvember 2025

Fjallahjólið Elja er Vara ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025

Elja er fjallahjól hannað og framleitt af Lauf Cycles. Elja er fulldempað fjallahjól sem sameinar með einstökum hætti eiginleika fjalla-, keppnis- og borgarhjóls.
6. nóvember 2025

Fischersund er Verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025

Fischersund talar til allra skilningarvita í gegnum ilm, tónlist og myndlist. Frá stofnun Fischersunds hefur skynheimurinn stækkað og styrkst um leið og verkum og vörum hefur fjölgað.
6. nóvember 2025

Albína Thordarson Heiðursverðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands 2025: „Það hefur allt breyst!“

Albína Thordarson arkitekt hlýtur heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands 2025 fyrir framlag sitt til byggingarlistar en hún hefur tryggt sér sess sem einn fremsti arkitekt Íslendinga. Hún hefur með störfum sínum rutt brautina fyrir nýjar kynslóðir arkitekta. Ævistarf Albínu Thordarson er merkilegur vitnisburður um gildi arkitektúrs sem þjónar fólki, samfélagi og menningu til framtíðar.
6. nóvember 2025

Náttúruverndarstofnun hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun 2025

Náttúruverndarstofnun hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025 fyrir framúrskarandi nálgun við uppbyggingu gestastofa með hönnun og arkitektúr að leiðarljósi.
6. nóvember 2025

Hönnunarverðlaun Íslands veitt í tólfta skipti í dag

Hönnunarverðlaun Íslands 2025 verða afhent í Grósku í dag 6. nóvember. Verðlaun eru veitt í þremur flokkum; Vara, Staður og Verk ársins. Að auki verða Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun veitt.
6. nóvember 2025
  • Næsta síða

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200