
Mystic Garden tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
Mystic Garden er safn glerlampa eftir Brynjar Sigurðarson og Veroniku Sedlmair hjá Studio Brynjar og Veronika. Safnið samanstendur af handblásnum glerhlutum þar sem tilraunir með efni, lit og ljós mæta frásögnum sem sækja í náttúru, rómantík og hið yfirnáttúrulega. Mystic Garden er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum vara.
23. október 2026

Leiftur tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
Leiftur er björgunarbátur hannaður af Páli Einarssyni fyrir Rafnar. Báturinn er hluti af sístækkandi vörulínu björgunarbáta Rafnar sem eru í notkun víða um heim. Leiftur er tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum vara.
23. október 2026

Backflip tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
Backflip er fellistóll hannaður af Guðmundi Lúðvík fyrir HAY. Stóllinn er endurhugsun á kunnuglegu húsgagni þar sem fellibúnaðurinn hverfur inn í bakið og fegurð, þægindi og form eru í fyrirrúmi. Backflip er tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum vara.
23. október 2026

Baugur Bjólfs tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur á Bæjarbrún sem gnæfir 650 metra yfir Seyðisfirði með einstöku útsýni frá mynni fjarðarins og inn dalinn hannaður af Arkibygg og Esju arkitektum. Baugur Bjólfs er tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum staður.
22. október 2026

Frakkastígur 1 tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
Frakkastígur 1 er íbúðar- og atvinnuhúsnæði eftir s.ap arkitekta. Húsið er framúrskarandi tilraunaverkefni í hringrásarhönnun þar sem endurnýting byggingarefna, lífsferilsgreiningar og sveigjanleiki til framtíðar eru samþætt arkitektúrnum frá upphafi. Frakkastígur 1 er tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum staður.
22. október 2026

Óskaland tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
Óskaland er viðbygging við samnefndan leikskóla í Hveragerði, hönnuð af marimo arkitektum, þar sem arkitektúr, innanhússhönnun, sérhannaðar innréttingar og fjölbreytt garðrými mynda leikandi og notalegt umhverfi út frá skala, sjónarhorni og upplifun barnsins. Óskaland er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum staður.
22. október 2026

Vitrum Iceland tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
Vitrum Iceland er verk eftir hönnuðinn Johönnu Seelemann sem spannar rannsóknir, tilraunir, hönnun, framleiðslu og sýningu. Johanna sameinar handverk og iðnað og skapar framúrskarandi lausnir, ferla og gripi úr endurunnu gleri. Verkin, hliðarborð, vegglampar, vasar, hillur og stóll, voru sýnd í H,A,K,K galleríi. Vitrum Iceland er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum verk.
21. október 2026

Sketching Bathing in Iceland tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
Sketching Bathing in Iceland er verk sem fjallar um sundlaugarmenningu Íslendinga eftir Rán Flygenring. Verkið var gefið út í samnefndri bók og birtist í sýningu og baðteiknismiðjum í þremur sundlaugum í Reykjavík. Sketching Bathing in Iceland er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum verk.
21. október 2026

¡Hola! tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
¡Hola! er herferð malbikunarfyrirtækisins Colas um ástand vega á Íslandi sem unnin var af auglýsingastofunni Pipar\TBWA. ¡Hola! herferðin er tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum verk.
21. október 2026

Fatahönnun og veðurdrifinn arkitektúr hljóta hæstu styrki Hönnunarsjóðs
Þróun og markaðssetning nýrra fatalína og verkefnið Veðurdrifinn arkitektúr 2.0 hlutu hæstu styrki í seinni úthlutun ársins úr Hönnunarsjóði. Úthlutunin fór fram í Grósku fimmtudaginn 15. október. Alls var 37 milljónum króna úthlutað til 21 verkefnis á sviði hönnunar og arkitektúrs og veittir voru 17 ferðastyrkir.
16. október 2026

Sköpunargleðin tekur völdin á öðrum fyrirlestri vetrarins
Á tímum þegar vindar blása úr öllum áttum beinum við sjónum að sköpunargleðinni, forvitninni og kraftinum sem býr í hönnun og arkitektúr.
Næsti fyrirlestur Tölum um hönnun og arkitektúr fer fram í stóra sal Grósku næsta miðvikudag, 21. október, kl. 9:00-10:00. Húsið opnar að vanda kl. 8:30 með rjúkandi heitum bolla og bakkelsi.
15. október 2026


Blásum í HönnunarMars lúðurinn! Opnað fyrir snemmskráningu 2027
HönnunarMars er hátíð sköpunar, hugmynda og nýrrar sýnar. Þar mætast hönnuðir, arkitektar og fyrirtæki sem hugsa stórt, ögra viðteknum hugmyndum og feta nýjar slóðir. Hvað er að gerast? Er eitthvað að breytast? Hvað er að springa út?
22. september 2026

Erum við að móta framtíðina eða bara að elta hana?
Christian Bason hefur um árabil unnið á mörkum hönnunar, stjórnunar og samfélagsbreytinga. Hann kemur til Íslands og heldur MasterClass á vegum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs í Grósku 16. september. Í viðtali við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs ræðir hann meðal annars námskeiðið þar sem hann býður stjórnendum og fagfólki í skapandi greinum, arkitektum, hönnuðum og öðrum sem eru að vinna í umhverfi sem er að breytast mjög hratt, upp á áhugaverða aðferðafræði sem er byggð á bókinni hans Expand.
9. september 2026

Stóra breytingin! Horft til framtíðar á fyrsta fyrirlestri vetrarins
Á fyrsta fyrirlestri vetrarins hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs beinum við sjónum að breytingum og framtíðinni. Hvaða breytingar eru í vændum og hvernig getum við undirbúið okkur sem best fyrir það sem tekur við?
8. september 2026

Við vitum hver greiddi fyrir flísalímið. En hver hannaði húsið?
Við megum svo sannarlega gleðjast þegar nýjar byggingar eru teknar í notkun, almenningsrými verða til eða ný hönnun lítur dagsins ljós og segja frá því. Sem betur fer eigum við framúrskarandi arkitekta og hönnuði hér á landi og því er mjög oft tilefni til að fagna nýju hugviti og sköpun.
8. september 2026

MasterClass með Christian Bason: Endurhugsum hvernig við sköpum verðmæti
Miðvikudaginn 16. september býður MH&A upp á MasterClass með Christian Bason í Grósku fyrir stjórnendur og fagfólk í skapandi greinum. Á námskeiðinu, sem byggir á aðferðarfræði bókar Christian, Expand, býður Christian stjórnendum og fagfólki í skapandi greinum, arkitektum, hönnuðum og öðrum sem vinna að breytingum, að ögra eigin hugmyndum og forsendum um hvernig og hvers vegna þau skapa verðmæti.
25. ágúst 2026

Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2027
Sýningin Samfélag í bleyti hefur verið valin sem framlag Íslands á 20. alþjóðlega Feneyjatvíæringinn í arkitektúr sem fer fram árið 2027. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs hefur umsjón með íslenska skálanum fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Samfélag í bleyti veltir upp spurningum um samfélagslegt hlutverk arkitektúrs og setur íslenska baðmenningu fram sem einstakan vettvang jafnræðis og mótvægi við aukinn einmanaleika og sundrung samtímans.
29. maí 2026

ALARK arkitektar hljóta fyrstu verðlaun í skipulagssamkeppni um Akureyrarvöll
Arkitektastofan ALARK arkitektar hlýtur fyrstu verðlaun í samkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis. Alls bárust 16 tillögur í samkeppnina sem Akureyrarbær efndi til í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Ein tillaga reyndist ógild og fjallaði dómnefnd því um 15 gildar tillögur.
26. maí 2026

FÍLA Á HÖNNUNARMARS - ÞAR SEM HVERFIÐ LIFNAR VIÐ
Á HönnunarMars stóð Félag íslenskra landslagsarkitekta, FÍLA fyrir vel heppnuðum viðburði, þar sem gengið var um Urriðaholt í Garðabæ. Í gönguferðinni var sjónum beint að því hvernig landslagshönnun, græn svæði og leikrými móta hverfið og daglegt líf íbúa þess.
22. maí 2026
